Æskan - 01.12.1994, Síða 14
„Já, ég hef lært ballett í níu ár í
Listdansskóla íslands og æfi þar sex
daga í viku, tvær og hálfa klukku-
stund í senn.“
- Hefur þú dansað í mörgum sýn-
ingum?
„Ég hef dansað í Coppeliu og
Draumi á Jónsmessunótt - og auk
þess á nokkrum nemendasýningum.
Við erum núna að æfa fyrir sýningu
til styrktar íslenska dansflokknum.
Hópurinn, sem ég er venjulega í, er
að sýna Sónötu í íslensku óperunni
en ég gat ekki tekið þátt í þvi vegna
leiksýningarinnar."
- Fáir strákar endast lengi í ball-
ett...
„Já, þeir koma og fara. í Listdans-
skólanum eru núna 80-90 stelpur en
fjórir eða fimm strákar."
- Er ekki erfitt að velja verk til sýn-
inga fyrst svo fáir strákar eru með?
„Kennararnir semja dansa fyrir
nemendasýningar og miða þá bara
við hópinn. í Coppeliu dönsuðu tvær
stelpnanna sem strákar."
- Er strákum strítt ef þeir stunda
ballettnám?
„Mér var strítt dálítið í byrjun.
Þegar maður hittir einhvern í fyrsta
sinn og segir frá þessu verður hann
kannski undrandi. Svo er það ekkert
meira.“
„SPURNINGIN ER
HVENÆR MAÐUR VILL
FARA“
- Hvaða dansarar hafa þér fundist
bestir?
„Þeir eru margir góðir. En ég get
nefnt Barysnikov - og Nurijev sem
reyndar er látinn."
- Stefnir þú fremur að því að
verða ballettdansari en leikari?
„Ég er á óvissutímabili og veit
ekki hvað ég vil helst starfa. Ég gæti
hugsað mér að verða leikari en
kannski fer ég utan í framhaldsnám í
ballett."
- Hvenær ertu kominn á það stig í
náminu að eðlilegt sé að leita fram-
haldsmenntunar erlendis?
„Sá tími er í sjálfu sér kominn.
Spurningin er bara hvenær maður
vill fara.“
- Hvert vildirðu helst fara ef af því
yrði?
„Til einhvers lands í Evrópu,
kannski Danmerkur."
- Legðir þú þá eingöngu stund á
ballett?
„Nei, ég færi líka í annað nám.“
- Móðir þín og amma, Tinna
Gunnlaugsdóttir og Herdís Þor-
valdsdóttir, eru leikkonur; faðir þinn,
Egill Ólafsson tónlistarmaður og
leikari. Hafa systkini þín líka leikið?
„Bróðir minn, Ólafur Egill, er að
leika í Einkalífi, kvikmynd sem verið
er að taka núna og er eftir Þráin
Bertelsson. Hann er 17 ára. En Ellen
Erla er sex ára og ekki farin að leika.“
„SENDI MIG ÚT í SAL“
- Foreldrar þínir léku í Vesalingun-
um. Álfrún Helga sagðist hafa séð
þá sýningu ellefu sinnum! Sást þú
hana kannski álíka oft?
„Að minnsta kosti mjög oft. Ef
mamma hafði engan til að passa
mig sendi hún mig út í sal!“
- Áttu eftirlætisleikara?
„Mér finnst Daniel Day Lewis
mjög góður.“
- Hefur þú lært á hljóðfæri?
„Ég var í tónlistarnámi en hætti
því tólf ára. Ég komst ekki yfir hvort
tveggja. Ég byrjaði að læra á flautu,
síðan fiðlu og loks klarinett."
- Hvað gerir þú fleira í tómstund-
um?
„Ég er bara með vinum mínum -
og lifi.“
- Hefur þú verið í „bílskúrshljóm-
sveit“ eða er það á döfinni?
„Nei. Það hafa bara verið ein-
hverjar pælingar, ekkert meir.“
- Á hvernig tónlist hlustar þú
helst?
„Gamla músík, frá hippatímabil-
inu.“
- Af hverju?
„Flestir vinir mínir hlusta á hana.“
- Hafið þið líka lífsskoðun og
hipparnir?
„Nei, ég held að þetta sé frekar til
þess að prófa eitthvað sem er öðru-
vísi en það sem núna er vinsælast -
og kannski að njóta þess sem for-
eldrar okkar nutu.“
- Hefur þú sérstakt dálæti á ein-
hverjum tónlistarmanni?
„Ég hef litið verið að pæla í því.
Ég held að það sé enginn einn sem
ég dái umfram aðra. En Jimi Hendrix
var góður.“
- Eru nokkur dýr á heimilinu?
„Fyrir utan systkini mín? Nei!“
7 4 Æ S K A N