Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 25
bogadóttir, g Emma
kriikkunumiHon,l99Z
Á sundmóti í Mosfellsbæ íágúst sl. Talið frá vinstri: Systkinin á Akureyri ijúni í sumar.
Áslaug Þorsteinsdóttir (silfur i skriðsundi), Örn Björnsson (brons í bringusundi), Emma
Rakel (gull í bringusundi), Inga Harðardóttir (formaður Þjóts).
„Hún hefur farið þangað nokkur sumur
og verið í tvær vikur. Á veturna er hægt
að dveljast þar um hverja helgi. Þau fara
líka stuttar ferðir þaðan, t.d. til Reykjavík-
ur.“
„Við höfum skoðað Ráðhúsið og farið
á ball íTónabæ," segir Emma Rakel. „Þá
spilaði KK-bandið þar.“
- Þótti þér það skemmtileg hljóm-
sveit?
„Neei, ekki mjög.“
- Hvaða hljómsveit þykir þér best?
„Pláhnetan."
- Finnst þér gaman að hlusta á tón-
list?
„Já, ég spila á hverjum degi. Ég á 17
eða 19 diska.“
GOSI M-SON
- Áttu eitthvert dýr?
„Já, kött, Gosa M-son. Hann sofnar
hjá mér á kvöldin."
- M-son? Merkir það kannski
Mömmuson?
„Já,“ segir hún og brosir feimnislega.
- Hvenær fékkstu hann?
„6. mars. í afmælisgjöf.
Manstu að Gosi á afmæli á laugar-
daginn," spyr hún svo mömmu sína.
„Já, ætli ég muni það ekki,“ svarar
Ásdís. „Það er ekki sjaldan búið að
minna mig á það! Hann veróur árs-
gamall 19. nóvember.
Gosi er fyrsti kötturinn sem hún á
ein,“ heldur hún áfram og beinir því til
mín. „Við höfum líka átt fjölskylduketti,
Mýslu og Mæju.“
- Hvað tekur við að loknu námi í
grunnskólanum?
„Hún á rétt á að vera þrjár annir í
Fjölbrautaskólanum. Sú deild er ný-
byrjuð. Bróðir hennar er þar og lýkur
námi í vor. Hann er sautján ára. Hálfan
daginn vinnur hann á vernduðum
vinnustað á Akranesi - við að búa til
lyfjaskápa, þræða garn á öngla og
sauma poka fyrir skreiðarútflutning.
Hún á líka rétt á vinnuþjálfun þar.“
MATARKLÚBBURINN MIÐJAN
- Þú sagðir að þér þætti gaman að
hitta vini þína í skólanum, Emma
Rakel. Eruð þið líka saman þegar þið
eruð ekki í skólanum?
„Já, oft í sundi og svo förum við út
að borða, einu sinni í mánuði. Ein!
Bara við krakkarnir."
- Á ýmsa veitingastaði?
„Nei, alltaf á Barbró. Og alltaf á
miðvikudögum, á kvöldin."
- Hvað borðið þið helst?
„Pitsur og hamborgara."
- Hverjir fara með þér?
„Gummi (Guðmundur Elías), Hjört-
ur, Áslaug, Addi og Kristjana. Það er
matarklúbburinn. Hann heitir Miðjan."
- Af hverju nefnduð þið hann Miðj-
una?
„Af því að við förum á miðvikudög-
um!“
Ég þakka þeim mæðgum fyrir spjallið
og óska Emmu Rakel góðs gengis í starfi
og leik.
Æ S K A N 2 5