Æskan - 01.12.1994, Page 21
PRINSINN
STRÝKUR AD HEIMAN...
Rætt við Helga Bachmann, níu ára rithöfund.
Um svipað leyti og þetta blað
berst lesendum í hendur kemur út
lítil bók eftir ungan rithöfund. Hann
heitir Helgi Bachmann og er nýorð-
inn níu ára - var átta ára þegar hann
samdi ævintýrið sem hann nefnir...
Þegar Helgi hafði lokið við ævin-
týrið seint í október tilkynnti hann
móður sinni, Þórdísi Bachmann, að
hann ætlaði að gefa það út í bók!
Hún hafði samband við okkur hjá
Æskunni og að ráði varð að við
stæðum að útgáfunni. Ár læsis er
fram undan. Okkur þótti vel við eiga
að koma á framfæri ágætu verki eftir
bráðungan pilt. Vonandi örvar það
marga til að lesa og semja sögur og
ævintýri.
ÞULDI GRETTISSÖGU
FYRIR MÖMMU
Sjálfur hefur Helgi lesið mikið...
„Mér þykja sögurnar um Elías eftir
Auði Haralds skemmtilegastar. En
ég hef líka mjög gaman af fræðslu-
bókum, einkum um dýr. Ég hef lesið
Heimsmetabók dýranna, Frumlífs-
söguna, Spendýr, Heimur dýranna
og Svona eru dýrin. Ég fylgist líka
með þættinum Kló er falleg þín.
Hann er einu sinni í viku um kattar-
dýr og rándýr.“
- Þú hefur eflaust lesið einhver
ævintýri?
„Já, t.d. Tíu Grimmsævintýri,
Dimmalimm, Konung Ijónanna og
Fríðu og dýrið.
Ég hef líka hlustað á Grettissögu.
Kennarinn minn í ísaksskóla las
hana fyrir okkur. Svo þuldi ég hana
fyrir mömmu þegar ég kom heim.“
- En þú ert byrjaður í öðrum
skóla...
„Já, Hvassaleitisskóla."
- Hvaða námsgrein þykir þér
skemmtilegust?
„Smíði. Ég er að smíða bakklóru
núna.“
- Handritið kom á tölvudiski...
„Ég lærði ritvinnslu í ísaksskóla
og ritaði hana á tölvu. Það var dálítið
seinlegt af því að ég hef ekki lært
fingrasetningu."
- Varstu búinn að semja söguna
þegar þú settist við tölvuna?
„Ég var eiginlega búinn og þó
ekki. Um leið og ég leit á skjáinn
fékk ég margar hugmyndir."
- Um hvað er ævintýrið?
„Það er um prins sem strýkur að
heiman af því að hann er orðinn leið-
ur á kóngalífinu."
- Hefur þú samið eitthvað annað?
„Nokkrar smásögur.“
- Langar þig til að verða rithöf-
undur að aðalstarfi?
„Nei, ég er ákveðinn í að verða
kvikmyndagerðarmaður."
ÞÁ FÆR MAÐUR AÐ VITA
ALLT UM MOZART
- Hvað gerir þú fleira í tómstund-
um en að lesa og semja?
„Ég fer oft í tölvuleiki. Mér finnst
Tasmanía besti leikurinn. Hann er
um skrýmsli sem er að leita að eggj-
um. Það étur rauðan pipar, vatns-
brúsa, sprengjur, bleikar mýs, fros-
inn lax, mannætublóm og kalkún í
einum bita! Leikirnir með broddgelt-
inum Sonic eru líka góðir.
Nú langar okkur til að kaupa tölvu
til að skrifa á. Hún er með geisladrifi
og alfræðiorðabók. Þá getur maður
kallað fram nafnið Mozart og fengið
að vita allt um manninn og heyrt
tónlistina líka!“
- Finnst þér skemmtilegast að
sitja við tölvuna og semja eða glíma
við leiki?
„Nei, mér finnst skemmtilegast að
ganga um úti og tala við Bjarna vin
minn, oftast um tölvuleiki. Stundum
förum við í knattspyrnu.
Það er líka gaman að safna pen-
ingum.“
- Áttu stórt safn?
„Nei, ég var að safna peningum til
að geta gefið mömmu afmælisgjöf.
Ég eyddi þeim öllum og meira en
það þegar ég keypti fallegan kerta-
stjaka handa henni.“
Ég þakka snjöllum snáða fyrir
spjallið. Hann á eflaust eftir að koma
oftar á óvart...
Helgi hitti skjaldbökukarlinn
Michaelangelo á Fiórída 1993.
Æ S K A N 2 1