Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1923, Blaðsíða 63
ALMANAK.
51
lagöi hann af staS. Eftir aS hafa fundiS bróSir sinn,
aSstoSarhershöfSingja Wessel, sem bjó á Ravnstrup,
hélt T'ordenskjöld áfram ásamt þjóni sínum, Christian
Cold yfir Fjón, til vinar síns, hertogans af Augusten-
borg, sem var á Als.
MeSan hann dvaldi þar, kom nokkuS fyrir, sem á
einkennilegan hátt boSaSi hiS snögga fráfall hans.
Eina nótt heyrSi Cold, aS húsbóndi hans hljóSaSi
upp úr svefninum. Cold stökk á fætur og flýtti sér
þangaS sem Tordenskjöld svaf, en hann var þá vaknaS-
ur, og kvaS sig hafa dreyrnt illa. Hann hafSi veriS
aS berjast viS eitraSa slöngu, sem aS síSustu vafSi sig
utan um hann og sta'kk hann í brjóstiS undir hægri
handlegginn.
Þegar hertoginn heyrSi þennan draum morguninn
eftir, baS hann Tordenskjöld aS fara ekki lengra, ann-
ars gæti skeS aS eitthvaS kæmi fyrir hann. En Tord-
enskjöld gaf ekki mikiS fyrir aSvaranir eSa drauma.
Eftir fáa daga fór hann til Hamborgar, sem í þá daga
var illræmt ræningjabæli og full meS spilahús. Hinn
sænski hershöfSingi Stad átti þar eitt slíkt hús, hann
var æfintýramaSur, sem lifSi á þvi aS svíkja meSbræSur
sína. Einn af þeim, sem hann hafSi flekaS var ungur
maSur frá Kaupmannahöfn, sem Tordenskjöld þekti-
Hann hafSi veriS narraSur inn í soila'hús Stads, til aS
sjá “slön.gu meS sjö hausum.” ViS spilaborSiS höfSu
beir náS af honum 25,000 ríkisdölum. Tordenskjöld
komst aS þessu, og nokkru seinna, er hann hitti Stad í
samkvæmi í Hannover, snurSi hann Stad blátt áfram:
“Ekki vænti eg, aS þú hefir heyrt um slöngu með
sjö hausum, sem maSur nokkur notar til aS hæna unga
menn aS spilaborSi sínu?”
Stad svaraSi ekki, en Tordenskiöld sneri sér aS
fóTVjrni o? sagSi söguna af bessum un?a manni. Því
næst lýsti hann því yfir. aS Stad væri ekki annaS en