Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1950, Qupperneq 28
30 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
bletti til að géta sáð í árið eftir, því jarðvegurinn bar það
með sér, að vera frjósamur, og ekki var að efast um
dómgi'eind manna á því sviði, því flestii', ef ekki allir,
sem frá Dakota komu voru uppaldir við akuryrkjustörf
í eldri byggðunum. Einnig kornu flestir með meira og
minna af nauðsynlegustu verkfærum til landvinnu. Og
þó ekki væri hægt að kalla neinn vel efnaðann, höfðu
flest allir einhvern bústofn til að byrja með og svo það
nauðsynlegasta, sem var margra ára reynzla við hérlend-
an búskap. Það var það, sem feður þeirra þurftu að læra
í sinni fyrstu ára örbirgð, þegar þeir komu frá Islandi.
Þess má geta, að þessi áminnsti hópur frá Dakota,
voru ekki þeir einu fslendingar, sem settust að í þessari
Vatnabyggð. Töluvert margir komu einnig frá öðrum ný-
lendum í Canada og Bandaríkjunum á fyrsta og öðru ári,
sem byggðin myndaðist.
Framlenging á járnbrautinni sem ekki náði lengra en
til Sheho, eins og áður er getið, var þokað áfram, svo
fyrsta eimreiðin kom til Wynyard um jólaleytið árið
1908. Næsta ár var haldið áfram með þá brautarlagningu
í áttina til Saskatoon, og var þá farið að greiðast um jám-
brautarferðir, en upp að þeim tíma var Wadena aðal
verzlunarstaður Austur byggðanna, en Quill Lake bær
þeirra vestari, efth að stjómin byggði brú og lagði veg
milli Big og Little Quill vatnanna. Vegalengdin til þess
bæjar var um 22 mílur frá Wynyard.
Sama veturinn, sem flutt var “Sleipnir” pósthúsið og
verzlanin inn á Wynyard bæjarstæði, var byrjað að
byggja fyrsta hótelið, sem nefndist Wayne Hotel. Henry
Miller (þýskur) hét hótelshaldarinn og kom með fjöl-
skyldu sína frá Minnesota. Einnig þá um vorið komst á
fót timburverzlun og lyfjabúð. Svo var líka umboðsmað-
ur jámbrautarfélagsins á staðnum til að sjá um sölu á
bæjarlóðum. Enginn af þeim var Islendingur. Símon
Sveinsson byggði fyrsta íveruhúsið í Wynyard.