Almanak um/fyrir árið 1900-1905 - 01.01.1904, Page 43
41
einkennilega skynsemi. HugboBsfrœSi hans er fá-
tækleg og laus viö allan sannfœrsukraft. Síöari
parturinn ,,Tönn fyrir tönn“ er klaufaleg árás á
Jónpr. Bjarnason, er þaö biblíu innvitnanir og þess
háttar. Sýnist hann taka þykkjuna fyrir Sig. Júl.
Jóhannesson og gjöra þaö meö aöstoö þeirrar
gömlu.
Lófalist heitir lítiö rit er Stefán prestur Sig-
fússon tók saman. Er það vel samið aö öðru en
því, aö setningaskipunin er stirö og óljúft til aflest-
urs. En að öðru er málið gott.
Almanak Ólafs Þorgeirssonar er oröið falleg
bók. Kápan steinprentuð með rnynd af Fjallkon-
unni framan á. Það er allfróölegt um ýmsa hluti.
Og svo er þar ,,Safn til sögu Islendinga f Vestur-
heimi, “ ritað af Eriörik pr. Bergmann. Er það
safn liölega ritaö, en gamlir og fróöir menn segja
mér,að þaö sé miður rétt og hlutdrægt í meira lagi.
Er illa fariö ef svo væri. Og sé svo, er nauösynlegt
aö fleiri skrifi. Það eru annars vandræði með þessa
blessaða presta, þeir eiga svo skelling bágt meö
sannleikann, það er eins og hann vilji hélzt ekki hjá
þeim vera, blessuðum.— Almanak þetta er mjög
blátt áfram, hvaö snertir tímataliö, er mjöghreins-
að af ýmsum dýrölingum, en í þeirra stað komnir
fœöingar og dánardagar merkra manna. Er þetta
lofsverð breyting.
Ljóðmæli Sig. Júl. Jóhannessonar hafa komið
út á árinu. Flest eru þaö Ijóð áöur prentuö. Ég
er ekki skáld og veigra mér við að dœina um skáld-
skap, en fyrir minn smekk má ég þó segja. Bók
þessi er 64 bl. aö stærð, í sama broti og ,,Á ferð