Afturelding - 01.06.1972, Blaðsíða 31

Afturelding - 01.06.1972, Blaðsíða 31
Seytján ára stúlka skrifar Billy Graham Seytján ára stúlka skrifar Billy Gra(ham, og spyr hann um álit hans og ráð á vanda- máli hennar. Hún var í menntaskóla, og var sér Iþess meðvitandi, að hún hefði fallið í synd. iÞetta var trúuð stúlka. „Ég hef haft kunningsskap við ungan mann, sem ekki er trúaður,“ skrifar hún. „Við höfum umgeng- izt hvort annað náið, og ég geri mér grein fyrir iþví, að ég hef verið siæm fyrirmynd sem kristin stúlka. Nú er ég svo ákaflega hrygg og full af áhyggjum. Hvað á ég að gera?“ Billy Graiham strýkur ekki yfir sannleik- ann. Hann þekkir Biblíuna sína, og veit mörk vegarins. Þess vegna svarar hann að hragði og á'kveðið: „Það er gott að þú átt sektartilfinningu. Allt of margir unglingar og æskufólk virð- ist geta tekið þátt í syndsamlegum hlutum án þess að samvizkan tali tii þeirra. Svo halda þeir áfram á þessum hættulega vegi og rata í alils konar vandræði, og uppgötva ekki ógæfu sína fyrr en of seint. Þetta skaltu gera: I fyrsta lagi, sker á sam- bandið! Þér .hefur verið gefið viðvörunar- mer'kið, og þú veizt, að þú átt erfiðleika í vændum. Seg við .unga manninn, að þú harm- ir það, að þú hafir hyrjað á því að vera með honum, og að þú — vegna þess, að þú viljir lifa hreinu og 'heiðarlegu lífi, sem kristin stúlka — verðir að sleppa öllum sam- skiptum við iiann. Vísast mun honum finn- ast þetta harðneskjulegt, en hann mun minnsta kosti slcilja það, að enn eru til ungar mann- eskjur, sem eiga samvizku, er dæm.ir þessa hluti. Þá mun hann uppgötva það, að hann hefur sjálfur illa gert. 'I öðru lagi, h'ið Guð að leiða þig í þeim málum, sem snertir hreina ást. Allt of margt æskufólk leikur sér eftir hljóðfalli augna- bliksins á vettvangi félagslífsins. Hér tekur kristinn ungdómur hænina sér til hjálpar. Vissulega geymir Guð einhvers staðar ungan mann handa þér, sem er reiðubúinn að deila með þér þinni háu hugsjón og hreinu trú.“ Þannig svaraði Biily Graham. Efast nokk- ur um að hann hafi svarað rétt? Frá ferðum Arils Framhald af bls. 27. stúlkan, að ailt í einu hefði hún fundið, að líf kom í hendina og þessi lífskraftur jókst ’liægt og jafnt þar til hún fékk þann kraft að hún gat veifað henni yfir höfði sér. Nokkrir mállausir og blindir fengu lækningu meina sinna. Enn læknuðust nokkrir sem voru svo fatlaðir, að þeir gátu ekki gengið. Nú gengu þeir um kring fyrir augum fólksins alfrískir. Nokkrir þeirra höfðu ekki getað gengið í mörg ár, en nú gengu þeir um og lofuðu Guð. Móðir kom fram með barn sitt, tveggja til þriggja ára, sem aldrei hafði getað gengið. Undir hæninni kom kraftur í fæt- ur harnsins, svo að það reis á fætur og hljóp um á ræðupallinum, fyrir augum allra. Múhameðsprestur, sem var lami, fékk alveg lækningu og reis upp. Hann kvaðst vilja verða kristinn maður. En vegna nærveru margra múhameðstrúar- manna, þorði hann ekki að vitna um það, sem skeð hafði með hann. Hann var viss um það, að ef hann hefði gert það, hefði orðið uppþot, og hann hefði mátt búazt við því, að þeir hefðu ráðið hann af dög- um. 'Kona sem 'hafði verið heyrnarlaus í 40 ár á öðru eyra, fékk fulla 'heym á eyranu. Ungur maður, sem ’búinn var að vera mállaus í tíu ár, varð fullfrískur. Við gátum ekki 'komið tölu á þá alia, sem þarna fengu lækningu. Samkoman var óviðjafnanleg, og orðrómurinn um sam- 'komurnar harst víða. TeklíS úr „Troens Bevls“, nokkuð stytt.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.