Afturelding - 01.04.1987, Page 11
mat á barna og unglingaefni. —
Þetta verkefni leit ég á sem
mikla köllun, segir Lind. — Hér
fengum við tækifæri á fundum
með þáttagerðamönnum og
framleiðendum að gagnrýna og
ráðleggja þeim sem skyldu gera
þætti fyrir ungu kynslóðina.
Lind gegndi formannsembætti
bæði hér og í KLF, og þetta starf
varð góð kjölfesta fyrir þá fjöl-
miðla sem hann átti seinna eftir
að veita forstöðu.
Sótti um leyfi fyrir útvarp og
sjónvarp
Síðan gerðist það 31. maí,
1981, að þingið samþykkti lög
um staðbundnar sjónvarps- og
útvarpsstöðvar. Hvítasunnu-
söfnuðirnir Elim og Tabor
ákváðu að senda umsókn bæði
um útvarp og sjónvarp. — Við
fengum einungis leyfi fyrir sjón-
varpi, sem betur fer, segir Lind,
og sér hann nú handleiðslu Guð
í því.
— Við sóttum um tveggja
stunda útsendingu á viku. Nú
eru þær 20. Sjónvarpsstarf okkar
varð miklu meira en okkur
grunaði nokkru sinni.
Strax á fyrsta fundinum þar
sem sjónvarpsmál voru rædd,
spurðu menn hvort Lind gæti
tekið að sér að stjórna starfinu.
Fyrst var talað um ólaunað starf,
en síðan kom TV-Inter inn í
myndina og bauðst til að greiða
laun Linds, til þess að starfið
gæti hafist.
— Alveg frá upphafi tók þetta
verkefni allan tíma minn, og ég
sagði upp öðrum störfum mín-
um. Nú einbeiti ég mér að þrem-
ur hlutum, segir Lind. Eitt er
sjónvarpsstarfið, annað er þjón-
usta mín sem öldungur í Elim,
og þriðja er dálítil kennsla við
biblíuskóla Elims.
Það besta sem gerst hefur
— Ég er heillaður af sjón-
varpi, segir Lind. — Lútherskur
prestur skrifaði okkur nýlega og
lét þá skoðun í ljósi að KKR
væri það besta sem gerst hefði í
dönsku kirkjulífi síðustu tíu
árin. Annar prestur sendi bréf
þar sem stóð að hún undraðist
fjölda þess fólks sem horfði á
þættina okkar. — í samskiptum
við fólk sem tengist fermingu,
greftrunum, sálusorgun og o.fl.
hitti ég fólk, sem hefur hrifist af
þáttunum ykkar, skrifaði hún.
Það að um þúsund manns snýr
sér til ókkar mánaðarlega undir-
strikar innihald þessara bréfa.
Við höfum ekki hugmynd um þá
útbreiðslu sem við höfum.
Nýir söfnuðir
— Hvaða þýðingu hefur stað-
bundið sjónvarp haft fyrir
dönsku Hvitasunnuhreyfing-
una?
— Söfnuðirnir okkar hafa
breyst. Áður glöddumst við yfir
því ef einn nýr kom á samkomu.
Nú er um þriðjungur samkomu-
gesta ný andlit. Margir frelsast,
skírast og bætast í söfnuðina.
Sjálfur bý ég í litlum nágranna-
bæ Kaupmannahafnar. Einungis
þar hafa tíu frelsast, sem er
árangur sjónvarpsstarf okkar.
Síðast en ekki síst hefur þetta
sjónvarpsstarf gert dönsku
Hvítasunnuhreyfinguna meira
áberandi. Nú er tekið mark á
okkur. Við eigunr t.d. aldrei í
vandræðum með að fá ráðherra
og stjórnmálaleiðtoga til að
koma í umræðuþættina okkar. í
næstu viku verður forsætisráð-
herrann gestur okkar, segir Lind.
— Hver er framtíð kristilegs
sjónvarps iDanmörku?
— Stærsta áskorunin sem við
höfum fengið er sú að nú er
komin opin sjónvarpsrás, TV 2,
í Danmörku. Starfsemi hennar
hefst 1. október, og áskilið er að
hún skuli framleiða aðeins
fréttaefnið sjálf. Annað efni á
hún að fá frá öðrum framleið-
endum. Þess vegna höfum við
nú hafið framleiðslu á allmörg-
um þáttum sem við vonumst til
að geta selt til TV 2. Það er rás
sem nær til alls landsins, og hún
mun gera okkur kleift að ná til
enn fleira fólks á stórkostlegan
hátt. Á meðan höldum við
áfram með staðbundna sjón-
varpið okkar, og bíðum þess
með eftirvæntingu að sjá hvort
yfirvöldin munu samþykkja fjár-
mögnun með auglýsingum. Það
mun veita okkur nýja mögu-
leika.
Að leggja allt í hönd Guðs
— Hver er þin persónulega
reynsla afþessu fjölmiðlastarfi?
— Það var erfitt í þyrjun. Við
byrjuðum með tvær hendur
tómar, og það var ný reynsla fyr-
ir mig. Stundum velti ég vöng-
unt yfir því hvernig þetta gæti
gengið. En við þetta hef ég lært
mikilvæga andlega lexíu. Ég hef
séð að áætlun Guðs nær fram að
ganga, hversu svart sem útlitið
er. Þess vegna lærðum við að
Frh. á bls. 30