Afturelding - 01.04.1987, Blaðsíða 28

Afturelding - 01.04.1987, Blaðsíða 28
fjveö voieö'u Kanada Á síðastliðnu hausti átti ég undirritaður þess kost að fara ásamt konu minni og dóttur til Kanada. Ferðin var bæði löng og ströng — en skemmtileg. Til- gangurinn var að heimsækja söfnuði Hvítasunnumanna og m.a. kynna fyrir þeim starf okkarhérá íslandi. Þegar til Kanada kom, í byrj- un september, var þar enn sumar með sólskini og hita. Margir gengu um léttklæddir, enda tíðin einstaklega góð og allur trjágróður og blóm í fullum skrúða. Við komum fyrst til Toronto, en síðan lá leið okkar vestur á bóginn, alla leið til Vancouver á vesturströndinni, þar sem við bjuggum þá sex mánuði sem við vorum í land- inu. í Vancouver stóð þá sem hæst heimssýningin Expo ’86, og var fyrsta hugsun okkar sú, að athuga hvort við kæmumst ekki þangað. Á heimssýningunni var margt um manninn, enda ekkert til sparað að gera hana sem allra glæsilegasta. Þar voru margar þjóðir saman komnar og mikill ys og þys allan liðlangan daginn, jafnvel svo að menn urðu að bíða í löngum röðum til að kom- ast inn á svæðið og sjá allt það sem þar var að gerast. Glæsileg- ast held ég þó að framlag Kanadamanna sjálfra hafi verið, þar sem þeir voru að sýna nýj- ustu tækni við fjarskipti og ferðalög. En einnig vakti „Pavillion of Promise,“ kristi- lega sýningaratriðið, verðskuld- aða athygli. KlettaíjöIIin, Sléttan mikla og Kyrrahafsströndin eru svæði sem menn gleyma ekki auðveld- lega eftir að hafa fengið tækifæri til að skoða þaú eins og við gerð- um þessa mánuði. Það var alveg stórkostlegt að fá að sjá með eigin augum þessa stórfenglegu náttúru, sem Guð einn hefur skapað. Alveg frá vesturströnd- inni til vatnanna miklu var alltaf eitthvað nýtt að sjá. Ekki spillti það fyrir að haustið var að koma, því litadýrðin var ótrúleg, hreint stórkostleg sýn á stund- um. Eitt sinn er ég átti leið um Jasper þjóðgarðinn, sá ég bæði elgi og dádýr, og fjallageiturnar sáum við oft. Einstaka skunkur og refur skaust líka stundum yfir veginn framundan, sérstaklega að morgni eða þegar fór að skyggja. Við byrjuðum strax á að heimsækja söfnuði, því ekki liðu nema þrír dagar frá því við kom- um til Vancouver, þar til við vorum komin af stað. í fyrstu höfðum við hvorki bíl til um- ráða, né peninga handa á milli. En Guð er góður og áður en þessir þrír dagar voru liðnir hafði opnast leið fyrir okkur að kaupa notaðan bíl — Ford Zephyr station, árgerð 1978. Þessi bíll var í góðu lagi og átti hann eftir að koma sér vel þá mánuði er við höfðum hann, því alls ókum við hvorki meira né minna en 26000 km, á rúmum fimm mánuðum. Á þeim tíma

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.