Afturelding - 01.04.1987, Blaðsíða 29

Afturelding - 01.04.1987, Blaðsíða 29
Skeifuflói í Vancouver. Kanada heimsóttum við alls 70 söfnuði og tókum þátt í ekki færri en 110 samkomum af ýmsu tagi. Helst hefðum við kosið að geta alltaf verið öll saman sem ein fjölskylda, en þar sem ferðaáætlunin var strembin var það ekki ávallt hægt. En ég var þó ekki alltaf einn heldur, því oftsinnis gat ég notið þess að ferðast og taka þátt í samkomum með kristniboðum frá ýmsum löndum, eins og t.d. Kína, Ind- landi, Grikklandi, Kenýa, Tanzaníu, Haiti o.ll. Það erstór- kostlegt að heyra hvað Guð er að gera um allan heim. En hvað okkur varðar getum við ekki verið annað en þakklát Guði fyrir þetta tækifæri sem okkur gafst að heimsækja Kanada á þennan hátt. Eitt er víst að nú vita margir í Kanada meira um ísland en áður, og margir biðja auk þess fyrir landi og þjóð. Ef til vill finnur einhver hjá sér þörf að koma til okkar eða hjálpa á annan hátt. Hvernig sem það er þá veit ég að ferð eins og þessi hefur áhrif. Megi Drottinn blessa ykkur. Indriði A. Kristjánsson Hjónin Carolyn og Indriði Kristjáns- son iiafa starfað að innanlandstrúboði á vegum Hvítasunnunianna undanfarin ár. Þau hafa notið styrks frá Kanada, sem er hcimaland Carolyn. Þau eru nú búsett á Akureyri, þar sem skrifstofa innan- landstrúboösins er. heimsóttum við fjögur vestustu fylki Kanada í ýmiss konar veðri, en samt bilaði aldrei né sprakk. Okkur var alls staðar afar vel tekið, þó svo að flestir vissu fremur lítið um ísland í fyrstu. Þetta breyttist fljótt, þegar fólk hafði séð skuggamyndirnar og munina sem við höfðum með- ferðis, auk þess að hlusta á það sem við höfðum að segja um land og þjóð og það starf sem hér fer fram. I byrjun október vorum við stödd í Edmonton, Alberta, þeg- ar við fengum óvænta aðstoð við kynninguna. Skyndilega ruddust fréttir um Island inn á hvert heimili, og allt í einu þurfti enginn að vera í vafa lengur um það hvar ísland væri. Þetta var þegar stórveldin héldu fund, og Reagan og Gorbachef hittust í Reykjavík. Þetta varð okkur geysileg hjálp, þar sem margir vildu nú vita meira um landið en áður, auk þess sem við áttum sjálf enn eftir að fara víða, m.a. til Manitoba og Saskatchewan þar sem margir íslendingar búa. A þessum tíma okkar í í Jasper þjóðgarðinum.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.