Afturelding - 01.04.1987, Side 17
w
Óla og Auðunn Blöndal.
Það er ekki nóg að hreinsast í
skírninni, þótt skírnin sé stærsta
stundin í lífi mínu. Bænin sem
ég bað í gær nægir mér ekki í
dag, rétt eins og ég þarf að borða
í dag, þótt ég hafi borðað í gær.
Mig langar að taka það sér-
staklega fram að ef fólk er
óánægt með trúarlíf sitt, þá er
lausnin ekki sú að fara í annan
söfnuð eða annað samfélag, eins
og sumir gera. Ef vandi er á ein-
um stað, þá kemur hann með
þegar skipt er um söfnuð. Maður
tekurgott eða vont með sér hvert
sem maður fer. Þegar eitthvað
gengur illa hjá manni er betra að
reyna að taka upp aftur á sama
stað, það sem maður missti nið-
ur.
Ég ráðlegg fólki eindregið að
byrja daginn á bænastund. Það
hefur hjálpað mér öll þessi ár.
Konan mín biður með mér, og
það er mjög gott að eiga trúaða
konu sem stendur með manni.
Þótt ég þurfi að vakna fyrr á
morgnana til þess að biðja, er ég
alls ekki þreyttari eða syfjaðri
þegar líður á daginn, heldur
þvert á móti miklu hressari.
Bænaherferð um miðsumar
Þann 15. júní kemur hingað
til lands 15 til 20 manna hópur
frá Norðurlöndunum, til þess að
biðja með íslendingum fyrir
verki Guðs á íslandi.
Þessi hópur tilheyrir samtök-
um sem vinna að því að biðja
fyrir sameiginlegum málum
Norðurlandanna, s.s. Norður-
landaráði og öðru norrænu sam-
starfi. Á síðustu árum liafa þau
komið saman til norrænna sam-
bænastunda, en þátttaka íslend-
inga hefur hingað til verið lítil.
Þess vegna hefur hópurinn
ákveðið að koma nú og biðja
með trúsystkinum á íslandi, því
þau telja sameiningu allra trú-
aðra, og sameiningu norrænna
þjóða mikilvægan þátt í bæna-
starfi sínu.
Þeim er mjög umhugað um að
biðja í Jesú nafni gegn hinum
illu öflum sem liggja að baki
ýmsum þeim fomeskjulegu
hreyfingum sem nú flæða yfir
Norðurlöndin, s.s. austurlenskri
dulspeki, yoga, innhverfri íhug-
un, ýmsum afbrigðum „New
age“ hreyfingarinnar, ásatrú og
hvers konar kukli.
Hópurinn biður einnig fyrir
trúboði og frumkvöðlum þess.
Bænarefnin koma til með að
tengjast stöðum og tímasetningu
bænastundanna. Á þjóðhátíðar-
daginn, 17. júní, á að biðja um
blessun fyrir íslensku þjóðina. í
Norræna húsinu á að biðja fyrir
sameiningu norrænna þjóða og
biðja Drottin að gefa okkur
þekkingu til að greina á milli
góðra og illra afla sem hafa áhrif
á menningu okkar. Á Þingvöll-
um verður hugsað um Drottin
sem réttlátan löggjafa og náðar-
ríkan dómara.
Bænasamkomurnar kl. 9-12 á
fimmtudag, 18. júní, föstudag,
19. og laugardag, 20. júní, eru
opnar almenningi, en krefjast
þess að menn hafi skilning á bæn
og andlegri baráttu.
Á kvöldsamkomum verður
fræðsla um bæn og fyrirbæn og
jafnframt verður beðið fyrir
fólki. Stefnt er að því að hafa
kvöldsamkomur á fimmtudegi,
föstudegi, laugardegi og sunnu-
degi kl. 19.
Hópurinn fer aftur 22. júní.