Afturelding - 01.04.1987, Side 20
Snorri Oskarsson
Frá innanlandstrúboði
Hvítasunnumanna
Þegar Jesús Kristur kom til
heimabæjar síns tóku menn ekki
við boðskap hans. Þeir þekktu hann
of vel. Seinna kom Jesús þar sem
hann leyfði illu öndunum að fara í
svínin. Þau hlupu fram af klettum
og ofan í vatn þar sem þau drukkn-
uðu. Þá kom fólkið úr nærliggjandi
bæ og báðu hann að fara. Var Jesús
of hættulegur?
Hann kom til þorpsins þar sem
samverska konan átti heima. Hann
bauð henni vatn, lifandi vatn. Þegar
íbúar þorpsins höfðu hlustað á
Jesúm og reynt hans góða Orð báðu
þeir hann um að vera og dveljast
hjá þeim.
Jesús kom til þeirra allra en fékk
samt ekki áheyrn nema hjá sumum.
Enn er þetta sama einkenni á
krisniboðinu sumir taka á móti en
aðrir vísa því frá. En áfram skal
samt haldið og aftur leggjum við
netin í vatnið.
Innanlandstrúboðsnefndin leggur
fram þrjú höfuðverkefni til að
vinna að á þessu ári:
1. Carolyn og Indriði Kristjánsson
munu fara ásamt öðrum til nokk-
urra staða þar sem enginn Hvíta-
sunnusöfnuður er, til þess að boða
fagnaðarerindið og leggja drög að
stofnun safnaða. í tengslum' við
þetta verkefni munum við hafa
samband við alla söfnuðina um
bænaherferð fyrir þessu starfi. Jafn-
framt halda þau áfram að heim-
sækja söfnuðina til uppörvunar
með samkomum og námskeiðum.
2. Herferðir verða í gangi á tíma-
bilinu júní - júlí á Akureyri, í
Reykjavík og Vestmannaeyjum.
Inn í þær koma gestir frá Ameríku,
13 manna hópur frá Biblíuskóla
Jimmy Swaggarts og Celebrant
bingers. Gestirnir verða með í þess-
um herferðum, en uppistaða þeirra
verður samt þátttaka íslending-
anna. Þú sem hefur áhuga á að gefa
viku í trúboð, eða herferð í sumar,
hafðu samband við forstöðumann
þinn og gefðu þig fram. Okkur
vantar fyrst og fremst þá sem eru
lúsir til að þjóna, þá sem geta spilað
og/eða sungið og mælt á enska
tungu.
Það er svo mikilvægt að við þor-
um að gefa samlöndum okkar það
sem við höfum reynt og upplifað í
trúnni; fólk skilur betur sönnun
anda og kraftar en gráar guðfræði-
prédikanir. Það er breytta lífið og
hinn breytti maður sem staðfestir
verk Jesú Krists. „Fyrir það verðið
þér og hólpnir, ef þér haldið fast við
Orðið, fagnaðarerindið, sem ég
boðaði yður, og hafið ekki ófyrir-
synju trúna tekið.“ (I. Kor. 15:2).
3. I haust verður námskeið um eft-
irfylgdarstarf í tengslum við sjón-
varpstrúboð. IT og Ljósið munu
standa að þessu námskeiði og ætl-
unin er að notast við efni frá
Kanada, sjónvarpsstöðinni
lOOHuntley Street. Þeir hafa góða
reynslu í að byggja tipp eftirfylgdar-
starf og þar hefur vinur okkar Keith
Parks lagt fram snilli sína, svo við
erum ekki að taka það sem enginn
veit hvernig reynist. Guð hefur
opnað okkur dyr að því besta sem
völ er á til eftirfylgdar í boðun fagn-
aðarerindisins. Höfurn það líka
hugfast að sjónvarpstrúboð er ekki
einn skemmtiþáttur í viðbót, held-
ur ný leið með Jesú Krist að hjarta
mannsins til þess að maðurinn glat-
ist ekki heldur eigi tryggt eilíft líf í
hinni nýju sköpun.
A síðasta ári stóð Innanlandstrú-
boðssjóður að fjármögnun 50 heim-
sókna til safnaðanna á íslandi.
Voru þessar tölur birtar á trúboða-
fundunum í febrúar s.l. Er hægt
annað en að gleðjast yfir sívaxandi
starfi sjóðsins?
Carolyn og Indriði Kristjánsson
fóru til Kanada s.l. haust og tókum
við þá Vörð Traustason á hálf laun
til að reka erinda Innanlandstrú-
boðsins. Söfnuðurinn á Akureyri sá
um hinn hlutann. Nú í sumar verð-
ur Vörður afleysingamaður hjá
RLR á Akureyri, en við biðjum um
það að efling starfsins verið slík að
hann geti komið inn sem sendiboði
Innanlandstrúboðs ásamt Indriða
og Carolyn. Við í nefndinni þökk-
um Verði störfin hans.
Það er okkur gleðiefni að geta
boðið Indriða og Carolyn aftur
velkomin til starfa eftir langa og
stranga kynningaferð um Kanada, >
þar sem þau kynntu ísland og verk-
efni sitt hér á Iandi. í farangrinum
hafa þau eflaust eitthvað áhuga-
vekjandi til safnaðanna varðandi
ýmsa þætti starfsiqs. Við biðjum
þeim blessunar í starfinu. Tökum
þau ákveðið upp á ,,bænararmana“
þeim til halds og trausts.
Innanlandstrúboðsnefndin hefur