Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1933, Qupperneq 49
42
43
legur gleðiboðskapur, sem eilífðarheill manna.
og trúarleg reynsla líka, er undir komin, að sé
veitt viðtaka. Að útbreiðslu þessa gleðiboðskap-
ar eigum við, sem erum í kristniboðsfélögun-
um að vinna á okkar landi og eins langt út i
heiðingjaheiminn og frekast er unnt. Og byrja
á okkur með því að lifa í trúnni á Jesú Knst
sem Frelsara og Guð.
Guð veiti okkur öllum til þess hjálp síns Heil'
aga Anda.
Sigurjón Þ. Árnason.
Með myndunum.
Séra Fridrik Fridriksson.
Kærleikurinn fellur aldre'
úr gitdi. (1. Kor. 13, 8.)-
'd
Það er kærleikurinn, sem er höfuðeinkenn1
á lífi séra Friðriks. Þær fyrstu fregnir nF
hann, sem bárust til mín, voru um kærleikahan
til barnanna. Það eru yfir 30 ár síðan. ^
var ég smádrengur og átti heima austur í sve*
og þá fékk ég mikla löngun til að kynnast h0*
um — séra Friðrik barnavini. Þessa löngtf
mína fékk ég brátt uppfyllta, og ég varð ek
fyrir vonbrigðum, því að ég fann að í honum
eignaðist ég vin, er ég mátti treysta.
Nú hefi ég haft kynni af honum og starfi
hans um 30 ara skeið og þegar ég virði fyrir
mér þetta tímabil af æfi hans, þá kemur mér
fyrst og fremst í huga 13. kapítulinn í fyrra
Korintubréfinu, þar sem Páll postuli lýsir kær-
leikanum, sem aldrei fellur úr gildi.
Séra Friðrik er fæddur 25. maí 1868, að Hálsi
í Svarfaðardal. 1 fátækt ólst hann upp, en í
brjósti hins fátæka sveins brann óslökkvandi
lÖngun til að »kanna menntanna lýsandi veldi.«
Þessi löngun knúði hann inn á menntabraut-
ina. Með fádæma þreki og viljakrafti yfirvann
hann allar hindranir og náði því marki, sem
hann hafði sett sér.
Hann tók stúdentspróf í Latínuskólanum í
Reykjavík 1893 og heimspekipróf við Hafnar-
háskóla árið eftir. Lauk guðfræðinámi við
Prestaskólann í Reykjavík 1900 og var vígður
til prests við holdsveikraspítalann á Laugarnesi
sama ár.
Það lífshlutverk, sem Guð sérstaklega fékk
honum að leysa af hendi er starfið meðal æsku-
lýðsins. Hann kynntist fyrst Kristilegum fé-
lagsskap ungra manna í Kaupmannahöfn og
starfaði þar um skeið. En þegar hann fór heim
til Islands, til þess að lesa guðfræði við presta-