Fróði - 01.02.1912, Page 23

Fróði - 01.02.1912, Page 23
FRÓÐl 249 inn. í enihverri leiöslu signdi hann sig sem til varnar gegn 4rásum freistarans. “Guö hjálpi yður séra Beret,’’ mœlti hún óþolinmóð. “Er ekki agnar ögn af viti oröið eftir í yður? Takið fánann ‘Og felið hann. Standið ekki svona glápandi og skjálfandi. Fljótt nú. Þeir sáu mig taka hann, og geta komið á eftir mér. Áfram með yður!” Nú tók hann loks að skilja hana. Hann reis á fœtur Góðlátlegt bros lék á andlitinu. Hún hratt honum ofur gæti- lega áfram. “Felið það nú eins og ég segi yður, gamli, ástúðlegi kjáni. ’ ’ Án þess að segja orð, vafði hann fánann upp, beygði sig, ilyfti fjöl upp úr gólfinu, og lét hann koma þar undir. Alice þaut til prests, faðmaði hann að sér og kysti hann af afli á báðar kinnsrnar. Heitar varirnar hennar létu eftir rauða bletti á kinnum gamla mansins. “Dirfist ekki að láta nokkurn mann fá það! Það er íáninn hans George Washington’s. ” Hún þjappaði honum þétt að sér. Hann hratt henni frá sér með báðum höndum, marg- signdisig, þuldi bænir hart og títt, en — augun hlóu. “Þér hefðuð átt að sjá mig. Jeg skðk fánann framan í þá—Bretana — og ungur yfirmaður tók ofan fyrir mér. Ó, séra Beret, það var svo líkt því, sem stendur í skáldsögum. Þeir ná virkinu en ekkí fánanum! hæ, hœ, ekki fánanum! Ég frelsaði hann; þaS gerði ég þó.” Ákafinn brá nýrri fegurð yfir liana, roðinn í kinnunum fór vaxandi og jók hið eðUlega, barnslega yndi hennar. Þetta sigurhrós hennar og meðvitund um mátt sinn og megin brá göfugleik á svip hennar, göfugleik, er klæðir jafnan vel ungt og fagurt andlit. Séra Beret stóðst ekki brennandi mcelskuna heunar, hann gat ekki flúið eða troðið í eyrun, meðan hún lét dæluna

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.