Muninn

Volume

Muninn - 01.12.1956, Page 9

Muninn - 01.12.1956, Page 9
MUNINN 9 kom, leitaði ég uppi sjúkrahúsið og hélt rakleiðis þangað. Mér var hleypt inn. Hún var mjög illa meidd. Báðir fætur hennar voru brotnir og mjaðmagrindin. Hún var föl ásýndum, en glöð í bragði. Ég settist hjá henni, og við töluðum saman um það, sem á dagana hafði drifið. Svo spurði hún mig, hvort ég væri farinn að vinna í Reykjavík. En ég sagði henni, að ég hefði komið suður til þess að hitta hana. Hún varð fá við. Ég sagði henni, að ég elskaði hana enn þá. En hún sagði, að við gætum ekki gifst. Ég sagði henni ,að henni myndi brátt batna og við myndum stofna heimili og eiga börn saman. Þá brast hún í grát. Ég tók utan um Itana og kyssti og reyndi að hugga hana. Hún hjúfraði sig upp að mér. Að lokum sagði hún mér, að við gætum ekki átt börn sam- an. Ég sagði henni, að ég elskaði hana fyrir því og ég vildi giftast henni. Ég reyndi að kyssa hana aftur, en hún ýtti mér frá sér og bað mig að fara. Hún grét. Þá kom hjúkr- unarkonan og bað mig að fara út. í marga daga reyndi ég að finna hana aftur, en hún vildi ekki tala við mig. Svo fór ég heim. Ég hætti að vinna og byrjaði að drekka. Ég skrifaði henni oft á sjúkrahúsið, en fékk ekkert svar. Svo kom hún heim. Ég reyndi að ná tali af henni, en mamma hennar rak mig í burtu. Ég stóð á hverju kvöldi við kirkjutröppurnar, og horfði upp í gluggann liennar. Þegar peningarnir, sem ég hafði lagt fyrir handa lienni, voru þrotnir, sigldi ég af landi brott til þess að reyna að gleyma. í rnörg ár sigldi ég niilli hafnarborganna. Ég reyndi að svalla, en það gekk ekki. Þegar ég fór með vinum mínum á pútnahús, þá fann ég, að hún var hjá mér, og ég sneri við. Ég kom heim í gær, og allt er eins og það var, þegar ég fór. Og nú stóð ég síðast við tröppurnar, þegar þú komst, og hún horfði aðeins raunalega á mig, eins og hún þekkti mig ekki.“ Ég hafði hlustað á söguna með athygli, og hún snart mig vissulega djúpt, og ég skammaðist mín fyrir að hafa spurt hann. Ég stóð upp, tók í hönd hans og gekk út. Nú er liðinn sólarhringur, síðan ég heyrði söguna, sem ég skrifaði í gær, en mér finnst, að ég verði að segja frá því, sem ég heyrði í dag. iÞegar ég kom á fætur í morg- un, heyrði ég, að ungur maður hefði skotið sig til bana í nótt. Ég fór að grennslast um, hver þessi maður hefði verið, og ég komst að því, að það var ungi maðurinn, sem ég tal- aði við í gærkvöldi. Og í kvöld gekk ég nið- ur kirkjutröppurnar og leit upp í gluggann. Þar sat hún þögul og horfði á mig. Huldar S. Ásmundsson. í myrkviði fornum I myrkviði fornurn lítil lind með lygnum fleti blundar. Og yngismey á ástafund hinn unga svein á góðri stund boðað hafði, og einn í skóg hann skundar. Strax og rann hin rauða sól varð reimt í hverjum skugga. Fölir svipir fara á kreik, og feigðarvofan læðist bleik. í myrkri vofur mönnum fjörráð brugga. Hún beið hans ei. í lind hann leit, lostinn harmi sárum. Hann rnynd af gömlum manni sá með myrkan svip og hárin grá, og augu bæði tæmd af gleði og tárum. Ari Jósefsson. Saga í V. M., Egill Gunnlaugsson á kvalabekknum. Aðalsteinn: ,,Já, hver var nú talinn mið- punktur jarðarinnar á miðöldum?" Egill (eftir mikið umrót í heilafellingun- um): ,,Helvíti.“

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.