Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 15
MUNINN
15
HANN KOM,
SÁ
OG SIGRAÐI
Allar ágizkanir helztu tölvísindamanna
íþróttanna hrundu til grunna í einni svip-
an þriðjud. 27. nóvember í Melbourne.
Vilhjálmur Einarsson hafði tekið foryst-
una í þrístökkinu og sett nýtt Olympíu-
met, en nokkru síðar tókst heimsmethafan-
um da Silva að komast fram fyrir.
í tveim síðustu atrennunum gat Vil-
hjálmur ekki stokkið vegna meiðsla, sem
hann hlaut í 4. stökki.
Vilhjálmur hreppti því silfrið, og er
hann fyrsti íslendingurinn, sem hlýtur
verðlaunapening á Olympíuleikunum.
'Þessi árangur Vilhjálms er 4. bezti ár-
angur í heiminum fyrr og síðar og skipar
honum á bekk með beztu þrístökkvurum
heimsins í dag.
Heimsmetið á da Silva, 16.56 metra, sett
á hálandsbraut í 2000 m. hæð í Mexico ’55.
2. Japaninn Kogake, 16.48 m., sett í Tokio.
B. Rússinn Sherbakov, 16.46 m., sett í
Moskvu. 4. Vilhjálmur Einarsson, 16.25
metra, sett 27. nóv. í Melbourne.
Vilhjálmur Einarsson er fæddur að Egils-
stöðum 5. júní 1934. Foreldrar hans eru
hjónin Sigríður Vilhjálmsdóttir og Einar
Stefánsson frá Mýrum í Skriðdal, bygginga-
fulltrúi á Austurlandi.
Hann kom fyrst í M.A. vorið 1951 til að
gangast undir próf upp úr 3. bekk og varð
stúdent vorið 1954.
Hann var formaður Í.M.A. skólaárið
1953—54 og gekk að því starfi með mikl-
um dugnaði.
A Landsmóti ungmennafélaganna á Eið-
um vakti hann fyrst eftirtekt á sér, þegar
hann setti drengjamet sitt í þrístökki 14.21
m. Á innanfélagsmóti Í.M.A. árið 1954
vann hann það afrek að stökkva 3.22 m. í
langstökki án atrennu, sem var íslenzkt
met. Síðan kemur hvert íslandsmetið af
öðru í þrístökki: 15.19 — 15.32 — 15.83 og
svo síðast hið glæsilega afrek, 16.25.
Til gamans má geta þess, að héðan frá
skólanum hafa margir af beztu þrístökkv-
urum landsins komið t. d. Vilhjálmur,
Stefán Sörensson, fyrrv. íslandsmethafi,
Friðleifur Stefánsson, sem var drengjamet-
hafi í þessari grein á undan Vilhjálmi og
núverandi íslandsmethafi í þrístökki án
atrennu og Hörður Lárusson, sem átti 4.
bezta árangur á landinu sumarið 1955.
Þakkar Vilhjálmur blakinu hinn góða
árangur sinn og mun efláust véra líkt far-
ið um hina.
A.