Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 18

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 18
18 MUNINN SPURNING Ég er gripinn undarlegum óróa og eirð- arleysi. Af hverju veit ég ekki. Ég get ekki fest hugann við neitt, rýk upp af stólnum, geng fram og aftur, sezt í annað sinn, og þannig koll af kolli. Mér kemur í hug að fara út. Það er kalt úti, og það er snjór. Snjókristallarnir glitra eins og marglitir gimsteinar á frosinni jörðinni, og marrið undan fótunum fylgir mér eins og skuggi í kyrrð kvöldsins og lætur illa í eyrum. Tunglið glottir hæðnislega á heiðum himn- inum, eins og það vilji storka mér og segja við mig: „Þú, vesæl mannskepna! Hvað ertu Eftir hátíðar verður byrjað á bekkjar- skákmótinu, og vill stjórn skákfélagsins hér með skora á alla nemendur að sýna góða þátttöku. Takmarkið er, að hver einasti bekkur sendi minnsta kosti eina sveit í keppnina. Ekki er enn þá ákveðið til fulls, hvernig keppninni verður hagað, en það verður auglýst síðar. Hér koma svo tvær skákþrautir, sú fyrri er frekar létt og í henni á hvítur leik og mátar í 4. leik. Hvítt: Kh2, Dd2, Ha8, Hc8, b2, e5, f4, g4, h3. Svart: Kh7, De4, Hb4, Hb7, d5, e6, f7, g7, h6. Sú seinni er nokkuð erfið og er fólgin í því, að hvítur leikur og mátar óverjandi eft- ir örfáa leiki. Hvítt: Kgl, Hc5, Bh6, Be2. Rf5, Dh4, a3, b2, f2, h2, g3. Svart: Kh8, Db6, I4a8, Hg8, Bb8, Be4, a7, d4, 17, f6, h7. Lausnir birtast í næstá blaði. að hugsa? Gáttu, gáttu áfram eins og ég, sem líð um himinhvolfin án marks og miðs, án þess að láta mér koma til hugar að víkja út af braut minni. Hér er ég, og hér verð ég, því að ég er eilífðin. Gáttu áfram stefnu- laust og án tilgangs, meðan þér endist sá lífskraftur, sem þér var ætlaður, unz þú hnígur niður og finnur hinar hvítu hærur jarðarinnar sveipast um þig og sérð glamp- ann lrá mér fölna og sortna, og andvarp þitt líður út í ómælisgeiminn. Síðan ekkert meir. En ég held áfram á lningsóli mínu inn í eilífðina." Ég geng niður í bæinn. Ljósin á hafnar- bakkanum speglast í sjónum, lengjast og skreppa saman á gárum hans. Ég fer inn í krána, og tóbakssvælan berst að vitum mér, um leið og ég opna hurðina og líður út í tært loftið eins og hvítleitt ský, sem er að leysast upp. Ég setzt við borðið í horninu, kveiki mér í pípu og sötra sætt kaffið. Það fer um mig þægileg tilfinning, líkt og er maður rennir niður deyfilyfi og finnur það hríslast út um líkamann og svæfa hina ókyrru starfsemi frumanna. Þannig sit ég, ég veit ekki hve lengi, því að ég tek ekki eftir neinu, sem fram fer í kringum mig, fyrr en ég hrekk við og sé, að kráin er mann- laus og veitingaþjónninn er að þurrka af borðunum. Ég þýt upp, skelli hurðinni á eftir mér og finn hrímkalt loftið strjúkast um vangann og stinga mig eins og broddar á rósagrein. Ég verð aftur órór og segi við sjálfan mig í ásökunartón: Af hverju varst þú ekki heima í kvöld og last um gang him- intunglanna og upprana alheimsins í „Efn- isheiminum" í stað þess að sitja í hugsunar- leysi inni á kaffihúsi og horfa inn í sjálfan þig? Ég tek á sprett upp brekkuna eins og á flótta undan einhverri ósýnilegri vofu. Frostnálarnar stinga mig enn sárar, en áður

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.