Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 19

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 19
MUNINN 19 en ég veit af, er ég setztur við borðið mitt í hlýju herberginu. Ég gríp niður í bókina, þar sem ég hætti í gærkvöldi, en ég hef engan frið í sálu minni. Stafirnir hringsnú- ast fyrir augum mínum líkt og iðandi hóp- sýning á íþróttavelli, og spurningarnar koma hver af annarri upp í hugann: Til hvers ertu að þessu? Hví leggstu ekki held- ur þarna á bekkinn, lygnir aftur augunum, lætur óráðshugsunum skjóta niður í hug- ann eins og eldingu í símavír, unz þær svífa burt, um leið og þú festir blundinn, og sef- ur síðan draumlaust til morguns? Hvers vegna ertu að valda þér áhyggjum með því að velta vöngum yfir hlutum, sem þú getur engin áhrif haft á, yfir heimi, sem þú skilur ekki í rökleysi sínu, en heldur þó áfram að vera kaldur veruleiki engu síður en tungl- ið, sem hefur þann eina tilgang að vera til og ekkert meir. Hlítir þú ekki sömu lögmál- um og blómið, sem óx í grýttri jörð í sumar og lifði ævi sína alla á því stutta sumri, and- aði að sér ilmi vorsins, svo heitt í gleði sinni og áhyggjuleysi, gat af sér fræ, sem barst með blævindi haustsins út um urðina, föln- aði síðan og lagðist til hinztu hvíldar við hjarta landsins? Og þó er það ekki alveg dáið, þetta fallega blóm. Það lifir nefnilega að vissu marki áfram í fræinu, sem sveif á svo tilvil junarkenndan hátt út í loftið, tók sér bólstað í jörðu og skýtur svo að vori undrandi auga upp á yfirborðið, nákvæm- lega eins og áður. Er þessi óræða röð ættliða og kynslóða ekki hinn eini tilgangur lífs- ins, þótt stefnulaus sé? Eða eiga þau fræ, sem þú og þínir sá, ef til vill eftir að skapa sér sinn eigin tilgang, taka stefnu og gera hana innihaldsríka, markvissa og ákveðna? Og er þá máske ekki til einskis setið við lít- ið borð í leitinni miklu, meðan hjól tím- ans heldur áfram að snúast í kringum sjálft sig og tunglið að glotta inn um gluggann þinn? L. G. Einar Benediktsson (Framhald af bls. 12.) er mér bókin Vogar, þótt erfitt sé að taka eitt verk Einars fram yfir annað, þar er allt með handbragði snillingsins, krafti hug- sjónamannsins, myndauðgi listamannsins og vizku spekingsins. Síðustu ár ævi sinnar dvaldi Einar suður í Herdísarvík „Fótsár af ævinnar eyðimörk." Hann dró sig út úr glaumi heimsins og tók sér hvíld eftir erilsaman vinnudag í landi feðra sinna. Eitt sinn kvað Einar, er hann kom úr utanför: „Móðir. Nú ber ég þitt mál á vör og merki þér ljóðastafi. Til þess tók ég fari, til þess flaut minn knör. Til þess er ég kominn af hafi.“ Ef til vill hefur honum orðið hugsað til þessara orða á ævikvöldi sínu suður í Her- dísarvík. Starfsdagur skáldsins Einars Benedikts- sonar var liðinn, liann orti lítið. Hann hafði lifað hátt, lifað glæsilega og skapað mikil listaverk og auðgað bókmenntir og tungu íslendinga. Hann hafði unnið sér sess meðal mestu skálda þjóðar sinnar og af sumum jafnvel talinn fremstur þeirra. „Því eitt er það jafnan, sem mannar mann, einn munur, sem greinir annan og hann — orðlist hans eigin tungu.“ Páll Pétursson. Danska í IV. b. Vernharður: „Já, Eggert Ólafsson. Já, hann var skáld og í hverju kemur það helzt fram?“ Þorst. Svörfuður: „Hann orti ljóð.“

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.