Muninn

Årgang

Muninn - 01.03.1964, Side 4

Muninn - 01.03.1964, Side 4
leysti hlekki formstirðnunar og minjar langrar undirokunar af skáldskap þjóðar- innar, um leið og veraldlegt frelsi vannst. Með ljóðum sínum vildi hann opna hjarta hennar fyrir hinni hreinu, einlægu og djörfu kennd fegurðarinnar, sem hann túlk- aði svo seiðandi í fyrstu bókum sínum, og raunar alla tíð. Og sjá —, þjóðin tók þess- um hörpusveini tveim höndum, og settist að knjám hans sem í leiðslu. Harpa Davíðs Stefánssonar hafði marg- víslega strengi. Framan af hljómaði mjög strengur Iieitra kennda, strengur ástar og lífsnautnar, þó oft með alvarlegu og dulúð- ugu ívafi. En seinni árin var enn víðar skyggnzt, — hlífðarlaus ádeila, einlæg ætt- jarðarást og bjargföst guðstrú, — allir Jress- ir þættir setja rnjög svip sinn á seinni ljóð hans. En aldrei brást hann gyðju hinnar hreinu fegurðar og ljóðrænu. Skáldgáfu sinni var hann ætíð trúr og kastaði aldrei höndum til neins, sem hann lét frá sér fara. Davíð Stefánsson stóð föstum fótum í ís- lenzkri rnold. Átthögum sínum var hann jafnan tengdur sterkum böndum og minn- ist Jreirra oft fagurlega. Hann trúði því heils hugar, að beztu eðliskostir Jrjóðar sinnar, tryggðin við moldina, karlmennska og manndómur samfara heilbrigðum vits- munum, myndu fleyta henni yfir allar öld- ur tízku og hjóms. Davíð frá FagTaskógi er jafnan heill í boðun sinni. Aldrei Jrarf að fara í grafgöt- ur um skoðanir hans, og aldrei þarf að kafa andlegt hyldýpi til að ná kjarna orða hans. Hann er framar öllu öðru „skáld hinnar nöktu fegurðar", eins og hann sagði sjálfur um Jónas Hallgrímsson. í einu kvæða sinna, sem fjallar um ætt- kvísl í Indíalandi, segir Davíð m. a.: „Þeir þrá ekki völd, sem má týna og tapa, turna, sem hrapa, frægð, sem er fals og hjóm. Allt þeirra líf er að elska og skapa sín eilífu lótusblóm.“ Davíð Stefánsson skapaði mörg eilíf lót- usblóm og gaf þjóð sinni. Þess vegna þakk- ar hún af öllu hjarta, blessar ástmög sinn, og geymir minningu hans sem einn sinn dýrasta fjársjóð. G. St. Áður átti ég . . . í krosshyrndri þrá og Jrykkju Jrarfnast ég huggunar og leita Jress, er ég átti og einu sinni var. Og sólin líður um loftin og lítil börn gamna sér og fuglarnir tísta í trjánum og tár koma í augu mér. Ég reyni að ráða í skýin, sem rjúka um himin geim og djöfullinn dansar framhjá og dregur sinn beizka seim. H. L. B. Perlan Ein og ein perla, ég hélt hún væri í vitund minni. Ég kafaði eitt sinn og fann fallega perlu, er ég trúði vera. En perlan mín bliknaði í Ijósinu og ég sá hún var aðeins sandkorn. Þá hrundu fjöllin mín oní sjóinn — sjóinn, sem geymir sandkornin mín. Síðan fága ég sandkorn, sem sumir halda perlu. P. Sk. 60 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.