Muninn

Volume

Muninn - 01.03.1964, Page 18

Muninn - 01.03.1964, Page 18
Hugleihing um bla&aútgáfu í M. A Um miðjan febrúar gerðist sá atburður hér í skóla, að nýtt blað leit dagsins Ijós. Nefndist það Hrímnir. Þótti þetta að von- um sæta allmiklum tíðindum, og þá ekki síður örlög blaðsins, en það var upptækt gert hið snarasta, vegna ærumeiðandi að- dróttana, sem þar birtust, um einn af starfsmönnum þessarar stofnunar. Forsend- ur þessa máls eru mönnum svo kunnar, að ekki er ástæða til að rekja þær nánar hér. Útkoma þessa blaðs varð undirrituðum tilefni eftirfarandi hugleiðinga. Ekki ein- vörðungu hin umrædda grein, sem olli ör- lögum blaðsins, heldur miklu fremur allt yfirbragð og andi þess. Forsvarsmenn snep- ilsins kveða sig hafa stofnað til útgáfunnar vegna óánægju með þau blöð, sem fyrir eru í skólanum. Segjast þeir vilja sporna við valdi þeirra manna, sem „íklæðast menn- ingunni eins og skítugum vinnugalla“, svo vitnað sé til eins af mörgum gullkornum Hrímnis. Annar útgefandi blaðsins, — og ábyrgðar- maður þess, — er hinn ágæti og menningar- sinnaði formaður Hugins, Björn Pálsson. Væntanlega er manni, senr slíkri ábyrgðar- stöðu gegnir, umhugað unr að vera félagi sínu og skóla trúr, og vill hann sennilega fremur hafa bætandi áhrif á blaðaútgáfu í skólanunr en hið gagnstæða. En nú vaknar sú spurning, hvort áhrif Björns Pálssonar og andlegxa bræðra hans, séu heppileg. Sýnir Hrímnir, að svo sé? Svari hver fyrir sig. En þó hygg ég, að álit allra dómbærra manna muni vera, að þ’ í fari fjarri. Meira að segja held ég, að full- yrða megi, að útgáfa Hrímnis sé að flestu leyti blettur á félagslífi í skólanum, og að- standendum blaðsins til stórrar hneisu. Við því er auðvitað ekkert að segja, þótt framtakssamur náungi í skólanum taki sér fyrir hendur að gefa út sorpblað, þótt slíkt sé raunar alltaf vafasamt fyrirtæki. Hitt er öllu alvarlegra, að honum skyldi takast að fá sjálfan formann Hugins í lið með sér, og auk heldur æda honum það ömurlega hlutskipti, að bera ábyrgð á skömminni. Ef að líkum má ráða, hefur útgáfa Hrímnis átt að vera eitt sterkasta vopn Björns Pálssonar í baráttu hans fyrir aukn- um völdum og áhrifum í félagslífi skólans. Er því hrapallegra, hversu vopnið hefur snúizt í höndum hans. Að vísu er vitað, að Björn er ekki höfundur þeirrar greinar, sem olli því, að blaðið var gert upptækt. Eigi að síður er hann ábyrgur fyrir henni, sem og blaðinu í heild. Verður naumast framhjá þeirri staðreynd gengið, að Björn Pálsson hafi með tiltæki sínu fyrirgert rétti sínurn til að á hann sé litið sem ábyrgan mann í félagslífi í skólanum. Eins og áður er getið, er Björn Pálsson einn þeirra manna sem telja Munin á villi- götum og vill að líkindum hafa áhrif á hann til hins betra. Skyldu menn ætla, að Björn gangi þar sjálfur á undan með góðu eftirdæmi í ritmennsku. Svo er þó ekki. Framlag formannsins til Hrímnis sýnir, að hann er sízt fær um að lyfta ritmennsku í M. A. á hærra stig. Af því, sem Björn ritar í blaðið, ber hæst greinina Áróður — kosningar. Þar íklæðist formaðurinn kufli siðapostulans, og lýsir yfir vanþóknun sinni á klíkuskap, óábyrg- um áróðri og baktjaldamakki í sambandi við kosningar í ábyrgðarstöður í félagslífi skólans. Mun ýmsurn finnast hér steinum úr glerhúsi kastað, þar sem öllum er í fersku minni hinn harðvítugi og óbilgjarni áróður, sem Björn lét reka fyrir sér í kosn- ingunum í fyrravor. Sannast á grein hans, að hægara er að kenna boðorðin en halda þau. M. a. hneykslast hann á því, „að ein- staklingar poti fram gæðingum sínum í því 74 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.