Muninn

Volume

Muninn - 01.03.1964, Page 22

Muninn - 01.03.1964, Page 22
Pað var og Desember gekk í garð, og það varð jóla- bragð að ýmsu. Um sama leyti stilltu kaup- menn jólasveinum út í glugga, sem lokk- uðu til sín saklausar skólasálir, og buddan tæmdist. En þótt í mörgu væri að snúast, var félagslífið með nokkrum blóma. Föstu- daginn 6. des. var Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fenginn norður að tilhlutan Hugins. Las hann úr bók sinni ,,Land og synir", og var það hin ágætasta kynning. En svo kom rúsínan í vikuendanum. A laugar- daginn voru Laugalandsmeyjar heimsóttar. Sökum mikils skorts karlmanna (karl- menna) í 6. bekk, urðu meyjarnar að taka niður fyrir sig, og voru þar drengir úr öll- um bekkjum. Maddömur úr 6. bekk gættu þar velsæmis. Mjög var þessi ferð rómuð, og lifðu sumir af því brauði allt til jóla. A sunnúdagiiin var tónlistarkynning og illa sótt. í skólanum hefur verið mælsku- námskeið undir handleiðslu þeirra Gísla Jónssonar og Þóris Sigurðssonar, og hefur árangur þegar komið í ljós. Skjótt skipast veður í lofti. Verkfall skall á 10. des. Allar framtíðarborgir hrundu. Verzlunum var lokað, prentarar hættu vinnu, og Muninn kom ekki út. í nokkra daga hafði fólkið hlaupið milli búða og hamast að kaupa jólagjafir, en hitt gleymdist, það var matur- inn. Nú glampaði á eina von í öllu vonleys- inu. Hún var sú, að allt gengi til þurrðar í búi heimavistar, og nemendur yrðu sendir heirn, því betra er að deyja heima. Aldrei hafa vistarbúar’hámað annað eins í sig. En þá kom undanþágan, og vistin fékk nægan mat. Mörg mærin stundi sáran yfir að hafa fórnað „fögrum línum“ til einskis. A mið- vikudag var málfundur í setustofu. Þar ræddi Pétur Péturss. um rétt kvenfólks til skólagöngu, Jón Baldvinsson ræddi um samvinnustefnuna og Pálmi Frímannsson um skógrækt. Tókst þeim vel. Annars var hálfgert stuttahljóð í flestum og fundurinn daufur. Dansleikur var haldinn á sal laug- ardaginn 14. des. og var það jólaball. Vel var til þess vandað af 4. bekkingum, en þeir sáu um fögnuðinn. Jólasveinar, fæddir fyr- ir tímann, komu og sungu góðan brag, einnig var töframaður og bingó til skemmt- unar. Um þessa helgi losnaði allt skólalíf úr skorðum. Þeir svölustu fóru heirn, því svo erfitt var um samgöngur vegna verk- fallsins, að taka varð hverja ferð, sem gafst. Má segja, að þá hafi bækur verið lagðar á hilluna. Á þriðjudagskvöld var jólavaka, er Huginn sá um. Flutti þar séra Bolli Gústafsson hugvekju, Gylfi Jónsson las jólasögu og Sigurður Guðmundsson smá- sögu. Sungnir voru jólasálmar og flutt tón- list. Nutu þessa fáir, því margir voru komn- ir heim. Daginn eftir, þann 18. des., var engin leið að hemja nemendur lengur. Var þá það ráð tekið að senda þá heim sem eftir voru. Gerðist jietta klukkan 10.30. Kyrrð og ró færðist yfir gamla skólann, og hann andvarpaði af feginleik. Nýárssólin rann upp og hvatti menn til dáða. Og á mánudag 6. jan. komu allir fullir orku í annan tíma. Áhuginn entist út þriðja tíma, þá var salur og síðan frí. Laugardaginn 11. janúar hélt „karmína" ball. Var þar til skemmtunar kórsöngur ferlegur, og einnig las Jón Mar- geirsson upp draugasögu. Óhugur var í lið- inu þetta kvöld. Mánudag 13. jan. var vel heppnuð jasskynning. Föstudag 17. jan. átti Hermann Stefánsson 60 ára afmæli, og Eimskipafélag íslands varð 50 ára. Var þá farið á sal og sungið fögrum rómi. Hvorugt afmælisbarnið gat verið viðstatt. Laugar- dagur var mikill merkisdagur. Þreyttur var úrslitaleikur í blaki. Þar vann 6. bekkur 78 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.