Muninn

Volume

Muninn - 01.03.1964, Page 25

Muninn - 01.03.1964, Page 25
Björn Pálsson ekki heldur: Ef ekki mætti elska það, ýmsir sáran grétu. Skólameistari þekkir a. m. k. eina und- antekningu: En þetta á sér ekki stað hjá Elísabetu. Sljákkar nú ögn í mönnum. Björn Páls- son hefur upp raust sína: Þögult heldur þykir mér, þegja Laugvetningar. Friðrik botnar: Enginn þeirra af sér ber þó yrki Norðlendingar. Slík frýjunarorð þola Laugvetningar ekki. Yrkja þeir nú hver um annan þveran, en vanda lítt til kveðskaparins. Friðrik getur ekki stillt sig: Ljóðum spillir leiða bullið, lízt mér illa á kveðskapinn. Kennararliðið sezt á rökstóla, og iitkom- an verður þessi: Læt ég stillast Ijóðasullið, leirskáld trylla mannskapinn. Teitur Benediktsson latínukennari kveð- ur: Mér leiðist þetta bragabull, býsna lítill hiti. Ef hér kæmi flaska full, ég færi að yrkja af viti. Skólameistari á bágt: Ég get ekkert ort, það skal ég játa. I mig vantar kímnigræskuna. Það bugar jafnvel beztu menn að láta bókvitið í sljóa æskuna. Erla Salómonsdóttir er tekin að dotta. Jóhann Heiðar verður henni til bjargar: Laugvetningar, lítið á, ljósa mærin sofnar ef að fjörið ykkur hjá ævinlega dofnar. Hljóðið í horninu kveður við: Éig bið þig, norðlenzk, bjarta mær, botna þessa vísu. Erla biður Friðrik ásjár, en hann bregzt snarla við: Þú ert, vinur, alveg ær að eiga við þessa skvísu. Laugvetninga fýsir að halda meynni, og er Jóhann Heiðar ekki fjarri því að vilja semja: Meyjaskipti nryndum vér mest af öllu kjósa. Fjórar vildum fá hjá þér fyrir manið ljósa. Laugvetningum magnast nú svo móður- inn, að Jóhann Heiðar sér sér ekki annað fært en biðjast liðsstyrks hjá nafna sínum Hannessyni: Nú er úti um norðanmenn. Nafni duoðu okkur. o Skólameistari er konrinn í stuð: Þetta skyldi auðsótt enn, ef orkan væri nokkur. Og’ Genginn er af göflunr senn ganrall spólurokkur. Framhald á bls. 83. MUNINN 81

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.