Muninn - 01.03.1965, Síða 6
sínum á öðru en því, sem lærdómurinn býður, verða að meira eða minna
ieyti viðskila eða utangarðs við fræðijötuna, kennarana og skólann. Fæstir
kennarar hafa nokkurn áhuga á félagsstarfinu, og nemendum er ekki talið
það til tekna, þótt þeir leggi sitthvað þar af mörkum. Slíkt öfugstreymi er
sízt til þess að hvetja nemendur við nám eða annað. Áhugi nemenda er alltaf
mikill fyrir bókmenntun, listum, heimspeki, þjóðfélagsfræði, sálarfræði o.
fl. þ. h., en skólinn kemur lítið sem ekkert til móts við þann áhuga. Og það
er í þessu tvennu, sinnuleysi skólans gagnvart félagsstarfinu og gagnvart
áhuga nemenda á öðrum málum en námið fjallar um, sem stefnt er að því
að drepa í dróma vilja og tilhneigingu nemenda til þess að hugsa sjálfstætt
og vera færa um að taka heilbrigða afstöðu til málefna og hluta.
Það hlýtur að mega án óhemju röskunar á öllu skólakerfinu taka nú
þegar upp fræðslu í einhverjum af áðurtöldum greinum (t. d. fyrst þjóð-
félagsfræði og listfræði) og auka síðar við eftir efnum og ástæðum. Mennta-
skólarnir ættu að kappkosta að gera sem flesta nemendur sína starfandi í
félagslífinu, þannig að nemendur kæmu ekki eingöngu í skólann til þess
að nerna úr bókum, heldur einnig til að kynnast og starfa á ýmsum menn-
ingarlegum sviðum. En slíkt starf yrði fyrst almennt, þegar kennarar legðu
rækt við það og námið væri ekki steypt í fast mót, heldur fengi að vaxa og
dafna, —frjálst eftir lögmálum þeirrar óskráðu hugsjónar, sem á að ríkja
yfir öllu menningarlífi.
Lítum nú í átt til rísandi sólar staðráðin í að flytja lífvænleg aldin í
skaut framtíðarinnar
PÁLL SKÚLASON.
2S$5$$Í$$$$$$$$5$$5$$$$$$$5$$$$5$$5$$$$$$$$5$$5$$$:
Ritgeroarsamkeppran
Úrslit í ritgerðarsamkeppninni um „Hlutverk blaðaútgáfu
í menntaskóla" urðu þau, að fyrstu verðlaun hlaut Pétur
Pétursson V. c. og önnur verðlaun Gunnar Stefánsson V. b.
Þrír dómenda mæltu með ritgerð Péturs í fyrsta sæti, en
Gunnars í annað. Einn dómenda mælti með ritgerð Gunn-
ars í fyrsta sæti, en Péturs í annað.
Því miður var þátttaka ekki sem skyldi. Aðeins fjórar
ritgerðir bárust.
Muninn þakkar dómnefnd störf sín og þeim nemend-
um, sem til þátttöku urðu.
74 MUNINN