Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1965, Blaðsíða 8

Muninn - 01.03.1965, Blaðsíða 8
til umhugsunar um málefni, sem að öðrum kosti hefðu algerlega farið fram hjá jDeim. Skólablað er með öðrum orðum ágætt með- al til að vekja áhuga nemenda á andlegum og menningarlegum efnum, því að skóla- blöð lesa allflestir menntaskólanemar, að minnsta kosti hér norðan fjalla. Ég drap á það áður í þessari grein, að blaðaútgáfa í skólum ætti meðal annars að hafa það hlutverk að gefa byrjendum kost á að sjá og sýna ritsmíðar sínar á prenti. Slíkt er oft og tíðum töluverð lífsreynsla fyrir þá, og ef vel tekst, þarf viðkomandi ekki að vera smeykur við að tjá sig í riti. Þetta getur því verið ágætt uppeldisatriði, og ennfremur gefur slíkt sem Jaetta öðrum byrjendum gott fordæmi, er þeir sjá einn úr sínum hópi troða fram á ritvöllinnn. En ég álít, að ekki beri að birta lélegar ritsmíð- ar, sem orðið geta lýti á blaðinu og eru ef til vill ekki sæmandi menntaskólanemum. Enda sækjast ritnefndir beggja blaðanna í MA eftir því að hafa blöðin sem vönduð- ust að efni og frágangi. Flug Munins á undanförnum árum hefði tvímælalaust orðið mun óglæsilegra, ef J^eir, sem förinni réðu, hefðu ekki lagt metnað sinn í að gera hann sem bezt úr garði og hugsað meira um gæði blaðsins, heldur en tilfinningar einstakra manna. Að vísu er hinn gullni meðalvegur vandrataður, en ég tel núver- andi stefnu mjög giftusamlega. Loks vil ég minnast á, hversu útgáfustarf- semi veitir ritnefnd blaðanna ágæta reynslu og þjálfun, sem getur komið sér vel síðar í lífinu. Það er eftirtektarvert, hve margir nemendur liéðan úr MA, sem hafa starfað við eða stutt skólablöðin á einhvern hátt, hafa gert blaðamennsku að æfistarfi sínu. An efa eiga blöðin hérna einhvern Jrátt í Jdví starfsvali. í afmæliskveðju á 30 ára afmæli Munins óskaði Þórarinn Björnsson skólameistari þess, að blaðinu tækist í framtíðinni að sameina „lífrænan Jjrótt og menningarlega háttu.“ Þetta hefur Munin og Gambra tek- ist, og er slíkt síður en svo ógöfugt hlutverk. Að lokum vil ég taka undir orð skóla- meistara og vona, að skólablöðum Mennta- skólans á Akureyri takist að sameina þetta tvennt hér eftir sem hingað til. En ritnefnd- um blaðanna er nauðsynlegt að gjalda var- hygð við að láta þau stirðna í föstum form- um, en á Jdví er mikil hætta, er blöðin eld- ast. F.f svo færi, myndi hinn lífræni þróttur smámsaman þverra og verða að engu. VÍSUR i. Hláka og mér er svo einkennilega innan brjósts. ii. Einsog bláskær stjama blómið sem óx um sumar fölnaði um haust féll til jarðar dó. iii. Alda sem berst yfir blátt kalt haf álút fellur að fótum mér. xexx. 76 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.