Muninn

Årgang

Muninn - 01.03.1965, Side 13

Muninn - 01.03.1965, Side 13
S-©'H^©-«^©'Mfc-S-©'HfrS-©'í-*S-©'»-lfeS-©'*-efcS-©'MSS-© Hugur hans er nú fullur saknaðar. Mynd in af bernskuheimilinu hafði alltaf blikað eins og skær stjarna langt inn í blámóðu minninganna. Hann hafði alltaf séð fyrir sér, lækinn, er hjalaði við túnfótinn, lág- reistan en hlýjan torfbæinn og grænan varp an, þar sem litlu systkinin léku sér, glöð og ánægð, óvitandi um grimmd og tillitsleysi veraldarinnar. Það hafði verið óskadraum- ur hans að geta séð þetta allt einu sinni enn, en nú er sá draumur hafði rætzt, hafði það orðið til þess að varpa skugga á þessa stjörnu minninganna. Héðan í frá myndu ígultopparnir í varp- anum og hálfhrunin húsin ætíð glotta fram- an í hann, þegar hann léti hugann reika til æskuáranna. Sólin er að hverfa á bak við fjöllin í norð- vestri. Skugginn líður hægt yfir dalinn til móts við gamlan og þreytulegan mann, sem klöngrast varlega niður grýtta austurhlíð- ina. ratti Leiðréttingar Þau mistök iirðu í síðasta tölublaði, að í Ijóðinu „Federico Garcia Lorca“ misritað- ist ein ljóðlína. Kemur hún hér rétt: „Á kletta Granada." — Einnig féll niður undir nafni ljóðsins „Veruleiki um draum“: Steinn Steinarr in memoriam. I ljóðinu „Laxinn" misritaðist og fyrsta ljóðlínan. Á hún að vera þannig: Aleinn á hamrinum háa ég sit.“ Muninn biður höfunda velvirðingar á þessum mistökum og lesendur að leiðrétta eintök sín. Ritstj. í SKAMMDEGINU Hugann angrar skammdegisins skuggi, skelfda sálu hrellir dökkvi svartur, hún vonar, þráir lifsins Ijós og yl. Bíður þess, að birtan kvikni aftur, bráðni ísar, — vor og sólarkraftur vakni eftir vetrar kalda?i byl. Okkar lífi er nú þa?mig farið, árstiðirnar skipta með sér völdum. Stundum virðist bágt um bjargarráð. Hjartað kalið, hugurinn er köldum haldimi dróma á slíkum vetrarkvöldum. Engin sý?iist vera von um náð. E?i eftir vetur vo?ið kemur aftur, svo vissulega skyldi enginn leggja upp árar, þótt á móti blási byr. Heldur upp si?i?i hug til dáða eggja, hopa aldrei, gá til ha?ida beggja. Þá hamingjan mun hlotnast, — ekki fyrr. bp s-©^-í¥s-©^-*s-©^-í!C'S-©^-*s-©'í-í'í-S'©^íí'!s-©'^M'!s-©^-ííH'© MUNINN 81

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.