Muninn

Årgang

Muninn - 01.03.1965, Side 23

Muninn - 01.03.1965, Side 23
beita þeim á tónaraðir nútíðarinnar. Kontrapunktískar aðferðir byggja verkið upp af mörgum sjálfstæðum röddum, en gera hljómasamböndum lítil skil, svo að sjónarmið þeirra gátu vel samrýmzt hug- myndum 20. aldar. Eitt af því, sem reynt var eftir aldamót, var að leika í tveimur eða fleiri tóntegund- um samtímis (polytonality). Það var eigin- lega síðasta tilraunin til að halda í gömlu dúrana og mollana. En Béla Bartók og Igor Stravinsky báru fram um 1920 nýjan þátt, þar sem var hið óreglulega hljóðfall. Tón- verk þeirra höfðu mikil áhrif, og nýbreytni þeirra var að sumu leyti mildari en hjá serialistum. Hindemith er aðalfrömuður nýklassíkur- innar. Munurinn á kontrapunkti hans og þeim, sem Bach og fyrirrennarar hans feng- ust við, var, að hinn nýi kontrapunktur var mjög ómstríður, notaði mest tónbil, sem litin voru hornauga í gamla daga. Eyrað var nú orðið þjálfað til að aðgreina tóna, sem hefðu líklega hljómað sem brothljóð í eyrum gömlu mannanna. Mörg tónskáld nútímans gera tilraunir með tóna, sem falla utan tónaraðar okkar; eins konar millitóna, fjórðungstónbil og þess háttar. Það er auðvitað ljóst, að slíkt er ekki hægt að leika á hljóðfæri með fast nótnaborð, eins óg t. d. píanó. En fiðlur og blásturshljóðfæri geta náð þessum tónum, ef tónlistarmaðurinn hefur eyra fyrir þeim. Og þar kemur upp knýjandi vandamál. Tónskáldin gera meiri kröfur til flytjenda en nokkru sinni fyrr. Alls konar útreiknað- ar tónhæðir og -lengdir reynast flytjendum oftlega fótakefli. En auðvitað þroskast flytjandinn smám saman, og vera má, að jrað þyki barnaleikur eftir 100 ár, sem nú er ofkrafið. A síðari árum hefur tónlistinni bætzt ýmis ný hljóðfæri eða hljóðgjafar, sem knúnir eru rafmagni. Það hefur aukið möguleika tónskáldanna og opnað nýjum aðferðum leið. Hin alræmda elektróniska tónlist not- ar rafeindaútbúnað sem tóngjafa og hefur ótæmandi möguleika á mótun tónsins, bæði að hljómblæ, hæð, styrk og lengd. En ókost- ur hennar er náttúrulega hin umfangs- miklu tæki, sem til flutningsins Jrarf. Kost- ur er hinsvegar, að henni má útvarpa milli- liðalaust. Tónhæðir í elektróniskri tónlist eru ekki miðaðar við gamla tónakerfið, en gjarna gefnar upp með tíðni sveiflanna. Kunnasta tónskáld elektróníkurinnar er Þjóðverjinn Stockhausen. Annað nútímafyrirbæri er Musique con- créte, sem mest er iðkuð í París. Tónskáld- in taka tónlist leikna af hljóðfærum upp á segulband og nota það sem hráefni í tón- smíðarnar. Þeir leika bandið með mismun- andi hraða, aftur á bak, áfram eða viðsnúið. Þeir blanda saman upptökum og gera ýms- ar fleiri kúnstir og taka jDetta á endanum upp sem fullunna tónsmíð. Það má segja Jtessari stefnu til hróss, að hún hefur úti- lokað vandamálið með samstarf tónskálds og flytjanda, Jrar eð flutningurinn er aðeins í því fólginn að leika segulbandið . Eg hef nú stiklað á stóru, drepið á margt og auðvitað sleppt öðru, sem gaman hefði verið að taka með. En bæði er það, að öll þau atriði og aðstæður, sem koma við sögu listanna og móta Jrær, væru efni í þykkar bækur, og vandasamt er að skrifa um nútíð- ina svo vel sé, sakir þess hversu allt er í deiglunni og mjög óvíst, hvað reynist þyngst á metunum, er fram í sækir. Svo að ée læt hér staðar numið og vona, að einhver hafi hafi haft gaman eða gagn af lestrinum. Jóhannes Örn Vigfússon. Efnafræði í III. c. Helgi Hall.: „Þið kann- izt við áfengislyktina, er það ekki? Þið haf- ið fundið hana á KEA.“ Náttúrufræði í VI. sa. Steindór: „Hvort heldur þú nú, Friðrik, að algengara sé að gefa börnum brjóst eða pela? Hvort ert þú heldur brjóst- eða pelabarn?" Friðrik: „Ja, ég er að minnsta kosti ekki pelabarn.“ MUNINN 91

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.