Muninn

Volume

Muninn - 01.03.1965, Page 25

Muninn - 01.03.1965, Page 25
heyrnarverð .En vissulega tel ég, að margt rnætti betur £ara.“ „Vildirðu ekki segja okkur eitthvað um það?“ „í umræðum tala flestir um að bylta „kerfinu,“ sem sé orðið úrelt og afleitt. Víst þarf að gjörbreyta ýmsu og skipuleggja öðruvísi, en nýtt kerfi verður ekki mikil framför, ef stofnunin er ekki lífguð um leið. Það er innra starfið, sem jryrfti fyrst og fremst að ganga betur. Þetta gæti gerzt nú þegar án allra reglugerðarbreytinga, því skólinn hefur mjög frjálsar hendur í starfs- aðferðum. Það er ekkert hættulegra fyrir skóla heldur en að staðna í gömlum hátt- um og venjum. Slíkri stöðnun mætti líkja við tregðulögmál eðlisfræðinnar og nefna tregðulögmál andans. Það þarf alltaf stöðug átök og nýjan kraft til þess að víkja af braut vanans. Ef einhverju á að breyta, verður skólinn allur að standa á bak við þær breytingar og gefa kennurum sínum kost á að kynna sér sem bezt, hvað hag- kvæmast sé í því sambandi, af því að hætt er við, að tilraunir einstakra kennara til þess að troða ókunnar slóðir veki einungis tortryggni nemenda og takist síður en skyldi. Vitað er, að nýjungum sumra kenn- ara hefur í vetur verið tekið fálega.“ „Telurðu áhuga nemenda fyrir náminu minni nú en áður?“ „Samanburður er erfiður, en mér virðast margir nemendur vera sinnulausir um nám sitt. Námsefnið er illa íhugað, gleymist fljótt. Námsgrein er sjaldan áhugamál í tómstundum. Líklega er kennslan daufleg." „Hvaða ástæður vilt þú telja fyrir þessu?“ „Nefna mætti sundurliðun námsefnisins. Það er kennd ein stund á dag í hverri grein og nemendur eru stöðugt að opna og loka námsbókum og eru ekki fyrr búnir að sökkva sér niður í eina grein en önnur tek- ur við. Það mætti vel hugsa sér að hagræða stundaskránni þannig, að sama grein yrði kennd meir eina viku en aðra, eða tvær stundir samfleytt, — jafnvel heilan dag. Sömuleiðis er yfirheyrsluaðferðin jafn þreytandi fyrir nemendur sem kennara. Skipa mætti öðruvísi í bekki. Hafa ýmist fleiri í fyrirlestrum eða færri í æfingum, MUNINN 93

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.