Muninn - 01.03.1965, Side 32
endunum sjálfum. Áróðursménnrinir hafa
komizt að raun um, að við erum mótæki-
legir fyrir hverskonar hneykslissögum og
rógburði. Einnig hefur þeim reynzt auðvelt
að æsa menn upp í það að kjósa ekki þenn-
an eða hinn vegna stjórnmálaskoðana. En
það eru tveir ólíkir hlutir sem ekki má
blanda saman. Annars vegar stjórnmálaskoð
anir. Hins vegar hæfni og dugnaður. Hver
maður ætti að sjá, að menn greinir ekki á
í stjórnmálum eingöngu vegna mismunandi
gáfnafars. Ef við lítum á málið af hrein-
skilni og óhlutdrægni, hljótum við að viður
kenna, að þar þarf að breyta ýmsu í þessum
málum. Hefja þarf kosningarnar (og allt
sem þeirn fylgir) upp á æðra svið. Afmá lág-
kúruna. En þetta gerist ekki, nema allir
hafi einlægan vilja til úrbóta. F.g ætla mér
ekki þá bjartsýni að halda, að þessi litli
pistill bindi endi á öll vandkvæðin í snar-
hasti. En ef einhverjir skyldu vakna til um-
hugsunar og finna hjá sér hvöt til aðgerða,
þá er hvorki pappír né bleki til einskis eytt.
ess ká
MANSÖNGUR
iÞú ert drottning drauma minna,
dýra, kæra mey.
Þig á kvöldin kýs ég finna,
kvöld þau gleymast ei.
Þú ert öllu fögru fegri,
fersk sem áfeng vín.
Drottning öðrum dásamlegri
draumarósin mín.
Þér ég bljúgur lýt í lotning,
líf mitt helgast þér.
Spaðadrottning, spaðadrottning!
Spila kærust mér.
Spilafífl.
Enn hefur lausavísnaþátt.
Eins og mönnum mun kunnugt, heldur Mun-
inn árlega veizlu, og er þangað boðið öllum ljóð-
elskum mönnum, sem ferskeytlur yrkja. Vana-
lega hefur át þetta farið fram á Hótel KEA, en
nú var það haldið að Hótel Varðborg, aðallega
vegna hótana Pálma um að segja sig úr ritnefnd.
Pálmi er eins og menn vita mikill áhugamaður
um bindindi.
Ekki virtust menn andríkir til að byrja með,
og var því afráðið að kaupa vindla og veita
þeim, er fyrstur kæmi með vísu. Brá Jóhannes
inspector þá hart við að kvað:
Gef mér vindil góði minn,
gef mér skáldalaunin,
svælast skal nú svartnaglinn,
svo þú finnir dauninn.
Hjálmar vildi meir andríki og kvenlegt orða-
val:
Fljóðin nýt á atómöld
ei til lýta mögur,
skreyta bítil brjóstahöld
bæði hvít og fögur.
En meðan á þessu stóð, áttu þeir Haraldur og
Pálmi í geysilegu orðaskaki um það, hvort
væri meira skáld. Hældi Pálmi svo sjálfum sér,
að helzt mátti halda, að þar væri sálmaskáldið
endurborið. Þá gafst Blöndal upp. Litlu síðar
fékk Pálmi miða og var áritað:
Upp upp mín grein og gullið lauf
gulvíðir ungur, lífs míns brauð.
Megir þú dafna mjaðarjurt
mæli ég sálm af pí og kurt.
Vildi ég líta landið mitt
laufviði skrýtt, svo allir hitt
geti í friði gert af lyst
glóhærða stúlku unga kysst.
Reikað hef ég um holt og mó
heilagur jesúm yfir fló,
Horfði hann yfir öll mín tré
ei vildi gista á jörðunne.
Var þetta borið upp á Pálma, þar eð hann er
skógræktarmaður, en hann neitaði með offorsi:
100 MUNINN