Muninn

Volume

Muninn - 14.12.1988, Page 3

Muninn - 14.12.1988, Page 3
Ritstjórapistill Kæru skólasystkin. Menntaskólinn á Akureyri er fallegur skóli. í mínum augum er hann sá fegursti á landinu þar sem hann stendur á hæðarbrún og horfir yfir fjörðinn, gamall og virðulegur, með margra áratuga reynslu að baki. Og ég óska honum einskis annars en bjartrar framtíðar. Þess vegna fer einn ósiður skólanema verulega í taugamar á mér. Það er sóðaskapurinn. * I fyrsta tíma reika nemendur hálfsvefnlausir inn í tandurhreinar stofumar, en þegar þeir em orðnir endumærðir eftir góðan blund í tíunda tíma er gólfin orðin að raslahaugum, gosdósir, sælgætisbréf og pappírssnifsi út um allt en raslaföturnar hálftómar, borðin orðin að tjáningatöflu fyrir martraðakenndar draumsýnir nemenda, og stólarnir dreifðir um alla stofu samkvæmt skipulagi sem jafnvel óreiðusnillingurinn og "Mastermindinn" Einar Öm Héðinsson gæti ekki hent reiður á. Jafnvel kennaramir eru farnir að minnast á að nemendur gætu umgengist skólahúsin og stofumar á töluvert mannlegri og kurteislegri hátt og þá er langt gengið. * Eg vil ekki að eftir tíu ár verði hér raslahaugur í stað menntaskóla. Þess vegna legg ég til að nemendur hætti að krota á borðin, hætti að ydda á gólfin, hætti að leggja frá sér gosdósir í gluggum og upp um veggi, að 4. bekkingar hætti að henda rusli í 3. bekkinga í matartímum í kjallaranum, þó að greyin séu stundum leiðinleg, að nemendur skilji ekki borð og stóla út um allt í stofunum og að allir kynni sér notendabæklinga um ruslafötur og fari eftir þeim. Sýnum landsmönnum að MA sé ekki aðeins besti heldur einnig hreinasti og snyrtilegasti skóli álandinu. Gerum raunverulegt átak og göngum betur um! nonður. mynd ljósmyn dastofa Sími 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 • 602 Akureyri Muninn 3

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.