Muninn - 14.12.1988, Blaðsíða 29
hlutfalli við lengd og þyngd
undirstöðunnar. Silfurræmur
sem hafa verið hengdar á tréð
eru einnig geysivinsælar. Þær
borða kettir og hafa farið í allt að
pakkaádag. Þettageraþeirtilað
hreinsa garnimar en eru annars
vanir að borða grasstrá í þeim
tilgangi.
Þegar kettír vilja láta
gæla við sig eru sitjandi og
liggjandi mannverur vinsæl
bráð. Þáleggjastþeirofanáþær
og fá um leið örugga umönnun
í minnst 1 klst., þar sem mjög
erfitt er að standa upp með kött
hangandi á bringunni eða á
lærunum. Ef köttum líður mjög
vel mala þeir og slefa. Einnig
eiga þeir til að naga ýmsa hluti
svo sem tölur og skyrtukraga.
Trétölur á ullarpeysum eru mjög
vinsælar, mjúkar og
bragðmiklar.
Kettir sækja mikið að
veiku fólki og til foma voru þeir
helg dýr Egypta og voru sögð
hafa lækningamátt.
Mal katta er bæði til að
þakka fyrir væntumþykju og
líka til að láta vita ef kötturinn
þarfáhjálpaðhalda. Köttursem
liggur fyrir andláti malar
stöðugt og mjög hátt (u.þ.b. 60
db.).
Annars hafakettir marga
góða hæfileika sem þeir nýta
óspart. Þeir eru býsna fimir og
em frægir fyrir, flestir, að koma
niðurá fjórafæturefþeirfallaúr
mikilli hæð, allt upp í 10 metra.
Til þess nota þeir rófuna sem er
mikilvægt skynfæri, hún er ekki
spotti sem hentugt er að taka í til
að góma kött. Kettir hafa líka
klær sem eru inndregnar og eru
þær skerptar reglulega. Til þess
hafa verið hönnuð brýnabretti
sem eru fáanleg í hvaða
gæludýrabúð sem er. Striga-
veggir eru þó teknir fram yfir
brettin þar semeinnigmáþjálfa
vöðva og klifur um leið og
klæmareru skerptar.
✓
Islenski kötturinn rekur
ættir sínar allt til landnámskatta
um800e.Kr. Hér hafa þeir lifað
við velmegun og veitt mann-
inum aðstoð við hvers konar
störf og gert meira gagn en
ógagn. Þróast hafa tvenns konar
stofnar, heimiliskötturinn
"Felis Catus" og líka villikettir
"Felis Villis". En önnur afbrigði
í heiminum skipta þúsundum
s.s. norskur skógarköttur,
síamskettir, persakettir,
tigerkettir, rauðir Búrmakettir,
chinchillakettir, Himalaya-
kettir, seal-point-síamskettir
o.fl. o.fl.
Kettir eru einnig
rómaðir fyrir samskipti og náin
tengsl við eigendur. Þeir hafa
erft háar fjárhæðir. Kötturinn
Charlie Chan t.d. fékk 250.000
dali í arf ffá eiganda sínum, konu
í Missouri sem dó 1978.
Að ónefndum íslensk-
um ketti, sem var uppi á 19. öld
miðri, safnaðist mikill auður til
hans þar sem hann þótti góður til
áheita. Fyrir áheitin var keypt
jörðin Stóragróf í Stafholts-
tungum með fénaði, hrossum og
hænsnum. Hann átti heima á
Hraunsnefi í Borgarfirði en
fluttist með húsmóður sinni,
Oddnýju Þorgilsdóttur, að
Landbrotum í Kolbeinsstaða-
hreppi. Þar lést Oddný og
skömmu síðar lagðist kötturinn
út og hvarf. Er þetta talinn
ríkasti köttur á íslandi (sbr.
Morgunblaðið).
Kettir hafa oftar verið
taldir þess verðir að erfa auðæfi,
enda hafa þeir mikla, djúpa
undirmeðvitund og
dáleiðsluhæfileika. Þetta er
þeim einum ljóst sem reynir að
upplifa og skilja líf katta, en þeir
eru taldir vera eitt fullkomnasta
spendýr sem gengur á fjórum
fótum.
Einkaritari Brandar.
Muninn 29