Muninn - 14.12.1988, Side 7
enn inni í skála lögðu báðar
rúturnar af stað. Þegar hún tók
eftir þvíaðbáðarrúturnarhöfðu
farið á undan henni fór hún alveg
í kerfi eins og skiljanlegt er og
gleymdi símtalinu um leið. I
staðinn hljóp hún út á
þjóðveginn og lagði af stað
suður á puttanum. Hún hafði þó
ekki gengið lengi þegar hún fékk
farmeð Vottum Jehóva.
Föstudagskvöldinu
eyddi hver í sínu homi, nema
ræðuliðið sem fór á ræðu-
keppnina milli Versló og MR.
En öllum var tjáð að mæta kl. 10
í húsnæði FUS í Garðabæ.
Bjarki Már Karlsson, sem
þekktur er fyrir sína
margrómuðu stundvísi, var með
lykilinn og auðvitað komu hann
og Unnur hálftíma of seint, svo
að við hin urðum að bíða á
götunni á meðan. Síðan var æft
fram yfir hádegi, en þá
uppgötvuðum við að við vorum
að missa af rútunni til Laugar-
vatns. Svo það var brunað af
stað, flestir náðu í tæka tíð, en
Björg og Birgir, sem fóru með
Bjarka Má, stöðvuðu rútuna
þegar hún var komin langleiðina
út úr bænum. Unnur þurfti að
fara á fund og kom með
dómurunum um kvöldið.
Keppnin átti að byija kl. 19.30
en þar sem þau komu ekki fyrr
en kl. 20.00 varð að seinka
keppninni um klukkutíma. Eins
og skarpir lesendur hafa kannski
giskað á var Bjarki Már
bílstjóri.
Svo rann stóra stundin
upp. Umræðuefnið: Laugvetn-
ingar leggja til að öll
ræðukeppni verði lögð niður.
Okkar fólk stóð sig allt með
stakri prýði, þjarmaði verulega
að Laugvetningum án þess að
vera nokkru sinni með
svívirðingar. Laugvetningarnir
voru líka miklu betri en ég átti
von á, og þá sérstaklega
stuðningsmaðurinn (síðasti
ræðumaður). Frummælandi
(fyrsti ræðumaður) þeirra gat
samt í hvorugri ræðunni haldið
sig innan tímamarka, og það var
nú gott.
Þegar keppni var lokið
tók við löng bið, því úrslit voru
ekki tilkynnt fyrr en á miðnætti.
Þegar þau voru kunngjörð kom
það í ljós sem ég hafði óttast.
Stuðningsmaðurinn í liði
Laugvetninga var allt of góður
enda var hann valinn
ræðumaður kvöldsins. Og þá
var útlitið heldur svart.
Ræðumaður kvöldsins
Laugvetningur og liðin höfðu
virst ákaflega svipuð. Margir
voru búnir að gefa upp alla von
fyrr um kvöldið en núna var hún
meir að segja við það að hverfa
hjá bjartsýnismönnum eins og
mér.
Þess vegna var eins og
það yrði sprenging í
hátíðasalnum á Laugarvatni
þegar það var tilkynnt að
sigurlið kvöldsins væri frá
Menntaskólanum á Akureyri!
Húsið hristist svo mikið vegna
fagnaðarlátanna að þeir sem
voru á næstu hæð fyrir ofan
héldu að Suðurlandsskjálftinn
væri skollinn á.
Þegar látunum linnti
byrjaði dansleikurinn.
Hljómsveitin Centaur lék fyrir
dansi og flestir skemmtu sér
prýðilega.
En það er önnur saga.
Hjörvar P. 1 - E
Þessi grein er mitt
Muninn 7