Muninn - 14.12.1988, Qupperneq 9
LJé
1-800-222-500.
í hálfrökkri sumarsins
sit ég og
bíð
eftir að síminn hringi.
Uti fyrir mála grá skýin
dropa á heiminn.
Fram til þessa hefur
biðin
verið árangurslaus.
En hver veit nema á
næsta ári, næstu öld,
næstu mínútum
hringir þú.
Og þá ætla ég
bara að stríða þér,
og taka símann úr sambandi.
Kannski það hætti að rigna
á morgun.
Stirðnuð andvökuaugu
Endalaus bið,
tifið í klukkunni,
hægur vindur gárar vatnið.
I útvarpinu er verið að
leika Rómeó og Júlíu með
Dire Straits.
Myrkrið víkur fyrir birtunni.
Enn ein nótt
án hvíldar,
án drauma,
án þín.
Ástin mín.
Þessa nótt þegar snjórinn
var nýfallinn og
myrkrið yfirgnæfði ljósið
varðst þú til, litla
snjókornið sem hraktist
undan vindi raunsæisins og
bráðnaði á ofni
ástarinnar.
Sorg.
Sorg er tár í auga
sem rennur niður kinnina
og er svo þurrkað burt.
Nema stundum,
stundum þorna þau á
kinninni.
Ást (eitt).
Ást er að hafa einhvern
til að þurrka burt tárin
fyrir sig, og
þurrka burt tárin
fyrir þann sama.
Ást (tvö).
✓
Ast er að fara framúr,
fárveikur um miðja nótt,
til að skrifa vonlaust ástarljóð
til stelpunnar
sem þú færð hvort sem er
aldrei að
kyssa.
Muninn 9