Muninn - 14.12.1988, Síða 21
yrði þar á meðal keppenda.
Reyndar höfðu félagar Árna haft
áhyggjur af að klukkur
Laugvetninga væru ekki nógu
næmar til að greina tíma hans.
En Eldingin var þó eitthvað ekki
nógu vel upplögð á úrslita-
stundu og hljóp undir ljóshraða.
Sprettunnendur gátu þó huggað
sig við það að Hulda Ólafs sýndi
geysihörku í kvennaflokknum
og sigraði sunnangellurnar á
skemmtilegan hátt. Síðasta
greinvarganga. ÞartókstM.A.-
ingum loks að sýna fram á
óyggjandi yfirburði sína í
fótfimi. Strákarnir gengu fyrst.
Tók Óskar þar þegar á mikla rás
og náði góðri forystu, svo góðri
að Laugvetningur einn sem
ómögulega vildi láta í minni
pokann, sá að eina leiðin til að ná
Óskari var að hlaupa hann uppi.
Að sjálfsögðu var kappinn
dæmdur úr leik og hlotnaðist
okkur því fyrsta og annað sætið
því Starri hafði einnig brugðið
fyrir sig betri sokknum á
leiðinni. Stúlkurnar sýndu svo
enn meiri tilþrif og tóku þær
María og Hulda
sunnanstúlkurnar í nefið við
mikinn fögnuð M.A.-inga. Þar
með var fyrra degi lokið og
útlitið ekki bjart. Seinni dagur-
inn byrjaði þó vel og vannst
handbolti karla og kvenna og
sund karla og kvenna. Einnig
reyndu stjórnarmeðlimir
skólanna með sér í hinni
vansköpuðu íþrótt bandí. Kom
þar augljóslega fram, að M.A.-
ingar höfðu til að bera mun meiri
hreysti og hugdirfsku í þessum
mannskæða leik og sigruðu
örugglega. Blakið fór þó heldur
verr og töpuðu bæði M.A.-
strákar og M.A.-stelpur í þeirri
viðureign. Mesta niðurlægingin
leit þó dagsins ljós í skákinni. í
þeirri grein höfum við í M.A.
alltaf tekið M.L.-inga ærlega í
gegn. En þarna voguðu þeir sér
að rúlla okkar mönnum upp.
Mun það verða verkefni næsta
árs að hakkaLaugvetninga svo í
spað í skákinni að þeir beri þess
aldrei bætur, hvorki á sál né
líkama. En hvar vom skákmenn
skólans? Briddsinn skíttapaðist
náttúrulega eins og vanalega og
ekki fleiri orð um hann að hafa
en ástæða er til að tala digur-
barkalega um stærðfræði-
keppnina. Guðbjörn brást
nefnilega ekki frekar en fyrri
daginn og kom fram nokkmm
hefndum fyrir skákina og saxaði
"Laugvetningagreyin" í sig.
Borðtennis endaði jafnt því
strákarnir töpuðu en stelpurnar
sigruðu. Mini-golf tapaðist en
okkar fólk sýndi sitt rétta andlit í
Olsen-Olsen og ræðumennsku,
mætti grimmt til leiks og sigraði
í báðum greinum.
Þar með var þessari or-
rustu lokið með naumum sigri
Laugvetninga en... þið vitið að
hefndin er sæt og því skulum við
bara bíða róleg þangað til þeir
koma hingað næsta vetur.
Leppalúði.
Glaðbeittir ferðalangar.
Muninn 21