Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 10

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 10
Benidorm!! mjög þreyttur, svo þreyttur að hann og sardína vinur hans fóru í nærliggjandi garð og lögðust þar til hvílu. Sem öryggisráðstöfun bundu þeir sig rdður í sól- stóla með fyrmefndu reipi til þess að þeim væri ekki stolið. Þriðjudagskvöldið 2. október var síðan haldið kveðjuhóf eitt mikið og myndarlegt í viðhafnarsal Levante Club. Þar var gert ýmislegt sér til dundurs eins og: Litli hvíti negrinn hélt heilmikla ræðu sem innihélt reynslusögu sem kom svo við hjörtu við- staddra að tómataupplag áfengissölunnar seldist upp á augabragði. Einnig fór vænn hópur manna á snigl- aveiðar, en sú hst krefst allrar athygli þátttakenda og eru göróttir drykkir efst- ir á bannlista hjá þeim félagsskap, eitthvað voru sniglamir slappir vegna óbeinna reykinga og mik- illar drykkju og var því haldið inn þar sem mennt- skælingar skemmtu sér og öðmm í alls konar teitis leikjum. Loks kom að há- punkti kvöldsins þar sem öllum hópnum var veitt sérstök viðurkenning fyrir góða hegðun! Kom þetta allflestum í opna slgöldu og skilja flestir ekkert í þessari nafhbót enn þann dag í dag. Hér fór óminnishegrinn í yfirvinnu og verða lesendur að ráðfæra sig við viti boma menn eða konur til að fá smáatriði á hreint. Þó varð óminnishegrinn að víkja fyrir gauli miklu sem flokkast undir eymavítisóda og stafaði af söng fimm stúlkukinda sem ráku upp þessi óhljóð. Var textinn all sérkennilegur og komst alls ekki í gegnum þessa ritskoðun. Síðasta dagixm hömuðust síðan allir við að nýta síðustu sólargeislana til að verða brúnni, með misjöfhum árangri þó. Allir vom stilltir síðasta kvöldið nema þá helst einhveijir nátthrafiiar sem ákváðu að gefa sundlaugargestum næsta dags eitthvað "gott" að borða, ekki fer sögum af því hvemig sundlaugargestir næsta dags bmgðust við þegar þeir sáu allt þetta góðgæti í sundlauginni, en það skiptir ekki máh því þá vorum við yfir Atlantshafi á heimleið. WANTED (dead or ahve) Hurðarhúnn af Europa Center. Fundarlaun: Bmce Springsteen spóla. Mr. Dorma húsvörður á Europa Center 10 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.