Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 15

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 15
RIGNIN GARN ÓTT Rauður leigubíllinn silaðist eftir rengvotri götunni og hægði enn ferðina þegar bílljósin endurköstuðust af endurskinsmerkjum ein- mana vegfaranda, sem virt- ist ætla yfir götuna, en hætti við þegar hann sá bílinn. I aftursæti bílsins sat maður í frakka, og undan hattinum rýndu dökkblá augu út í regnið, án þess að sjá nokkuð. Leigubílstjórinn leit öðru hvoru í spegilinn og fylgdist með þessum þögla, en ógnvelgandi far- þega. Hann hugsaði með sér að ef einhver væri lík- legur til að ræna hann, væri það þessi maður. Samt gat hann ekki útskýrt fyrir sjálfum sér hvað það var sem hann var hræddur við, andht farþegans var á engan hátt óvenjulegt, reyndar var það, við nánari athugun, einstaklega venju- legt. Maðurinn var að vísu klæddur eins og glæpamað- ur í bíómynd, og xnn leið og bílstjórinn gaf stefnuljós inn á bílastæðið ákvað hann að það hlyti að vera það eina grunsamlega við manninn. Engu að síður varpaði hann öndinni léttar þegar far- þeginn rétti honum þús- undkall og steig út án þess að gera sig Hklegan til að taka við afganginum. Maðurinn vafði frakk- anum þéttar um sig og dró hattinn enn neðar, og gekk síðan eftir gangstéttinni með regnið í fangið. I vinstri hendi hélt hann á brúnni leðurskj alatösku, en hægri höndin var í vasan- um. Án þess að taka hönd- ina úr vasanum tók hann sígarettu úr hálftómum pakka, og sneri síðan bak- inu í regnið meðan hann kveikti í henni. Hann hafði gætt þess að fara úr leigubílnum við hinn enda götunnar, það var líklega óþarfi, en hann vildi ekki eiga það á hættu að nokkur sæi til hans, og fannst að gangandi maður væri ekki eins áberandi og leigubíll. Þegar hann kom að hús- inu leit hann í kring um sig, og gekk síðan inn í anddyrið. Honum létti við að komast inn úr rigning- unni, og hann hristi mestu bleytuna af frakkanum. Síðan gekk hann að dyra- símanum og ýtti á alla hnappana nema einn, nafh- ið hennar var á honum. Þegar fyrsti íbúinn kom í dyrasímann sagðist hann vara "ég", og það brást ekki að þegar ringlaðar raddir fóru að tala hver ofan í aðra heyrðist suðið í lásnum og hann gekk inn. Hann flýtti sér niður í geymsluna er vera skyldi að einhver kæmi út á stigapall- inn til að athuga hvað væri um að vera. Rúmri mínútu síðar lagði hann af stað upp stigann rólegum skrefiun og reyndi að líta út fyrir að vera einn af íbúunum. Hann staðnæmdist fyrir utan dyraar hjá henni, bretti upp kragann og dró hattinn niður fyrir augun. Hann opnaði töskima og hélt henni í fanginu, hann hringdi dyrabjöllunni og fór síðan inn í töskiina, þannig að ekki var hægt að sjá á hveq'u hann hélt í hönd- inni. Eftir stutta stund kom hún til dyra. Hún opnaði djTnar til hálfs, og leit á hann með svip sem var einskonar sambland forvitni og ótta, það var greinilegt að hún þekkti hann ekki. Hann dró hanska- klædda höndina úr tösk: unni og rétti henni. í henni hélt hann á rauðri rós. Hún brosti. Þorsteinn MUNINN 15

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.