Muninn - 01.12.1990, Side 15
RIGNIN GARN ÓTT
Rauður leigubíllinn silaðist
eftir rengvotri götunni og
hægði enn ferðina þegar
bílljósin endurköstuðust af
endurskinsmerkjum ein-
mana vegfaranda, sem virt-
ist ætla yfir götuna, en
hætti við þegar hann sá
bílinn.
I aftursæti bílsins sat
maður í frakka, og undan
hattinum rýndu dökkblá
augu út í regnið, án þess að
sjá nokkuð. Leigubílstjórinn
leit öðru hvoru í spegilinn
og fylgdist með þessum
þögla, en ógnvelgandi far-
þega. Hann hugsaði með
sér að ef einhver væri lík-
legur til að ræna hann,
væri það þessi maður.
Samt gat hann ekki útskýrt
fyrir sjálfum sér hvað það
var sem hann var hræddur
við, andht farþegans var á
engan hátt óvenjulegt,
reyndar var það, við nánari
athugun, einstaklega venju-
legt. Maðurinn var að vísu
klæddur eins og glæpamað-
ur í bíómynd, og xnn leið og
bílstjórinn gaf stefnuljós inn
á bílastæðið ákvað hann að
það hlyti að vera það eina
grunsamlega við manninn.
Engu að síður varpaði hann
öndinni léttar þegar far-
þeginn rétti honum þús-
undkall og steig út án þess
að gera sig Hklegan til að
taka við afganginum.
Maðurinn vafði frakk-
anum þéttar um sig og dró
hattinn enn neðar, og gekk
síðan eftir gangstéttinni
með regnið í fangið. I
vinstri hendi hélt hann á
brúnni leðurskj alatösku, en
hægri höndin var í vasan-
um. Án þess að taka hönd-
ina úr vasanum tók hann
sígarettu úr hálftómum
pakka, og sneri síðan bak-
inu í regnið meðan hann
kveikti í henni.
Hann hafði gætt þess að
fara úr leigubílnum við hinn
enda götunnar, það var
líklega óþarfi, en hann vildi
ekki eiga það á hættu að
nokkur sæi til hans, og
fannst að gangandi maður
væri ekki eins áberandi og
leigubíll.
Þegar hann kom að hús-
inu leit hann í kring um
sig, og gekk síðan inn í
anddyrið. Honum létti við
að komast inn úr rigning-
unni, og hann hristi mestu
bleytuna af frakkanum.
Síðan gekk hann að dyra-
símanum og ýtti á alla
hnappana nema einn, nafh-
ið hennar var á honum.
Þegar fyrsti íbúinn kom í
dyrasímann sagðist hann
vara "ég", og það brást ekki
að þegar ringlaðar raddir
fóru að tala hver ofan í
aðra heyrðist suðið í lásnum
og hann gekk inn.
Hann flýtti sér niður í
geymsluna er vera skyldi að
einhver kæmi út á stigapall-
inn til að athuga hvað væri
um að vera. Rúmri mínútu
síðar lagði hann af stað upp
stigann rólegum skrefiun og
reyndi að líta út fyrir að
vera einn af íbúunum.
Hann staðnæmdist fyrir
utan dyraar hjá henni,
bretti upp kragann og dró
hattinn niður fyrir augun.
Hann opnaði töskima og
hélt henni í fanginu, hann
hringdi dyrabjöllunni og fór
síðan inn í töskiina, þannig
að ekki var hægt að sjá á
hveq'u hann hélt í hönd-
inni.
Eftir stutta stund kom
hún til dyra. Hún opnaði
djTnar til hálfs, og leit á
hann með svip sem var
einskonar sambland forvitni
og ótta, það var greinilegt
að hún þekkti hann ekki.
Hann dró hanska-
klædda höndina úr tösk:
unni og rétti henni. í
henni hélt hann á rauðri
rós.
Hún brosti.
Þorsteinn
MUNINN
15