Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 31
LÖG HUGINS
I NAFN OG TILGANGUR
1. Félagið heitir HUGINN og er skólafélag Menntaskólans á Akureyri.
2. Stjóm skólafélagsins er nemendaráð M.A.
3. Félagar em allir reglulegir og óreglulegir nemendur í dagskóla. Skulu þeir greiða félagsgjald sem
nemendur ákveða í kosningum ár hvert að loknum umræðum á skólafundi þar sem fram skulu
koma tillögur um félagsgjöld frá sijóm Hugins. Kjörstjóm sjái um undirbúning kosninganna, fram-
kvæmd þeirra og talningu atkvæða. Félagsgjöld skólafélagsins skulu innheimt á sama hátt og önnur
skólagjöld. Öllum öldungardeildamemum og kennurum skal þó heimilt að greiða skólafélagsgjöld
hafí þeir áhuga á að starfa að félagsmálum innan skólans.
4. Félagsgjöldum Hugins skal eingöngu varið til félagsstarfsemi á vegum skólans.
5. Gjalddagi skólafélagsgjalda er 1. vetrardagur og eindagi þeirra 1. nóvember.
6. Til staðfestingar þess að gjaldið hafi verið greitt skal afhent sérstakt skóla- og félagsskírteini með
fullu nafni, lögheimili, nafnnúmeri, fæðingardegi og ári, stimplaðri mynd af viðkomandi aðila og
öðmm þeim upplýsingum sem nauðsynlegar kunna að þykja. Þetta skírteini gefa út í sameiningu
skólastjóm og skólafélagssijóm.
7. Tilgangur Félagsins er að:
1) gæta hagsmuna nemenda gagnvart skólayfirvöldum og ráðuneyti og virkja nemendur til baráttu
fyrir hagsmunum sínum. Skal það starfrækja hagsmunaráð sem hafi þetta verkefni með höndiun.
2) gefa út blað er auðveldi félagsmönnum að koma á framfæri skoðunum sínum og áhugamálum í
rituðu máli.
3) styðja við bakið á annarri félagsstarfsemi í skólanum eftir föngum.
H STJÓRN FÉLAGSINS
1. Stjóm félagsins skal skipuð sjö mönnum: formanni, ritara, gjaldkera, forseta hagsmunaráðs og
skemmtanasljóra auk tveggja meðstjómenda. Allir þeir sem skipa sijómina hafa jafnan atkvæðisrétt
á stjómarfundum.
2: í verkahring stjómarinnar er að:
1) seny'a Qárhagsáætlun fyrir starfsárið, áætla félagsgjöld í samræmi við hana og dreifa áætluninni
til nemenda sólarhring áður en hún er borin upp til samþykkás.
2) boða til skólafunda.
3) Skólafélagsstjóm skal sjá um að boða til fundar með 1. bekk í byijun hvers skólaárs. Æskilegt er
að það gerist innan 10 daga frá skólasetningu. Á þessum fundi skal kjósa fulltrúa 1. bekkjar í rit-
stjóm Munins og einn fulltrúa í hagsmunaráð.
3. Gjaldkeri sér um fjárreiður félagsins og um að færa yfir þær nákvæmt bókhald. Hann skal gera
grein fyrir öllum helstu útgjalda- og tekjuliðum skólafélagsins, í hveiju tölublaði Munins.
4. Skemmtanastjóri skal sjá um skipulagningu tímatöflu á Möðmvallakjallara. Auk þess skal hann sjá
um kvöldvökur.
5. Að öðm leyti sldptir stjómin með sér verkum.
MUNINN
31