Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 33

Muninn - 01.12.1990, Blaðsíða 33
V UM BEKKJARÁÐ 1. Kjörstjóm sér nm að kosin séu bekkjaráð í upphafi hvers skólaárs. 2. í bekkjaráði skal hver bekksögn eiga einn fulltrúa og æskilegt er að ráðin kjósi sér formann innan 10 daga frá skólasetningu. Ef fiöldi bekksagna er jöfh tala skal kjósa einn viðbótarfulltnía úr sömu bekksögn og formaður ráðsins. 3. Bekkjaráðin em ekki undir sfjóm eða áhrifum skólafélagsins. VI SKÓLAFUNDIR 1. Skólafundir Qalla um hagsmunamál nemenda, embættisafglöp, svo og ýmis önnur mikilsverð mál, sem upp kimna að koma. Skólafundir em æðsta vald nemenda í öllum málum nema lagabreyting- um. 2. Formaður skólafélagsins og sfjóm þess hafa rétt til að boða til skólafunda. Auk þess á forseti hags- munaráðs kröfu á að boðað verði til skólafunda. Skal hann sjá um val á frummælanda á slíkum fundum. Einnig er skylt að boða til skólafundar ef 10% nemenda fara fram á það. 3. Skólafundir skulu boðaðir með minnst tveggja kennsludaga fyrirvara. Þeir skulu boðaðir með ítar- legri dagskrá. 4. Formaður Hugins setur skólafundi og skipar fundarsfjóra. Kennarar hafa málfrelsi á skólafundum en ekld atkvæðisrétt. Að öðm leyti gilda almenn fundarsköp á skólafundum. Einfaldur meirihluti atkvæða nægir til að samþykkja ályktanir skólafundar. VH AÐALFUNDIR OG EMBÆTOSMANNASKLPTI 1. Aðalfund skal halda í tvennu lagi: Aðalfund I og II. Á aðalfundi I skal fialla um lagabreytingar en á aðalfundi II skal kosið í öll embætti skólafélagsins. Hvom aðalfund skal boða með minnst viku fyrirvara. 2. Aðalfund I skal halda eigi síðar en tveim vikum fyrir kosningar ár hvert. Skal þar fialla um laga- breytingar. 3. Um aðalfund I gilda eftirtalin ákvæði: 1) Formaður félagsins setur fundinn og stingur upp á fundarsfjóra. 2) Einfaldur meirihluti nægir til að samþykkja lagabreytingar. 3) Heimilt er á aðalfundi að bera upp breytingartillögur við tillögur til lagabreytinga og viðbótartil- lögur við þær tillögur. 4) Að öðm leyti gilda almenn fundarsköp á aðalfundi I. 4. Um aðalfund H (kjörfund): Kosningar. Aðalfundur H skal haldinn eigi síðar en viku fyrir páska og skal þá kosinn formaður félagsins, forseti hagsmunaráðs, gjaldkeri, ritari, ritsijóri Munins, skemmtanasijóri, tveir meðsijómendur, hagsmimaráð, ritsijóm Munins, tveir fiilltrúar í skólasijórn og einn fulltrúi í skólanefnd. 5. Um kosningar skulu gilda eftirtalin ákvæði: 1) Kjörstjóm sér um að framboð berist í öll þau embætti sem kjósa skal í. Þetta hindrar þó eigi að önnur framboð berist. 2) Framboð skulu tilkynnt kjörstjóm eigi síðar en viku fyrir aðalfund H. Framboð sem síðar eru tilkynnt em ólögleg. 3) Hvexju framboði skal fylgja listi með minnst 10 og mest 25 meðmælendum. MUNINN 33

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.