Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 3

Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 3
Reybjavík, í janúar 1920. 1. tbl. Uýdrsbcen. Lag: Lát den nya nádctlden. Náðartíðin nýja veiti ngja von og kraft frá þér, gef eg ávalt liðs þíns leiti, Ijúfi Guð, þilt barn eg er; gef eg, herra, hugsa megi hœrra upp frá þessum degi, undirbúi eilífð þá, að eg fái þig að sjá. Eg vil mínu lifa lifi. Ijúfi Guð, t von, i trú; mínu lífi hönd þín hlífi, hirðir trúr, mín sól ert þú. Leið mig, að eg aldrei beygi út af þínum lagða vegi. Ljúfi Jesú, lít til mín, leið þú hverja sál til þín. B. J. ffkap vort og heilsa. t*að er góður siður, að vera glaður í bragði. ^Gleðin er þakkargjörð til Guðs«, segir gam- enskur málskáttur. Gleðin yngir og upplyftir, en istöðuieysið Pjáir 0g þjakar. Hláturinn hefir ekki síður a á lífið en tárin. Géttúðin er aftur á móti skaplöstur, þrek- leysi; léttúðgir menn rista ávalt grunt, en bjartsýni og Iétt skap er eitt af beztu gæð- um lífsins; það er eðli, sem oft er samfara dýpsta og alvarlegasta skapi, eðli, er sýnir bina sönnu andlegu yfirburði. Og það er nokkuð það, sem hver og einn getur tamið sér að meira eða minna leyti. Þegar maður gætir vel skapsmuna sinna, get- ur maður með öruggu og glöðu hjarta yfir- bugað hinar þyngstu raunir. Sá, sem hefir létta lund, tekur tilveruna á réttan hátt og skoðar ákvörðun lífsins i réttu ljósi. Væri lífið að eins hrygð og harmagrátur, mundum vér alls ekki vera eins rótgrónir því, eins og allfiestir af oss eru. Oss ber að taka á móti góðu dögunum með þakklæti, en það gleymist, því miður, oft og einaft, og umbera mótlætið með þol- gæði og bafa það jafnan hugfast, að eins víst og það er, að mótlætið tekur fyr eöa síðar enda, jafn víst er það, að mótlætið tekur einnig enda. En glaðlyndið getur sem bezt yfirbugað hin mestu vonbrigði, ef vér að eins viljum það sjálfir. Allir eiga að reyna að temja sér að líta björtum augum á tilveruna, en ekki að horfa stöðugt á skuggahliðarnar. Það er mjög algengt, að konur og karlar eru kátir og glaðværir í samkvæmum, en aftur á móti önugir og uppstökkir, þung- lyndir og óánægðir hversdagslega og beima fyrir. En það er einmitt daglega lífið, sem hefir þýðingu fyrir oss sjálfa og þá sem um- gangast oss. Margir menn eldast fyrir tímann; hörund- ið verður hrukkótt og andlitsdrættir bitrir og hörkulegir, Ef liffærin eru heilbrigð, þá er orsökin venjulega sú, að hinar óumflýjan- legu sorgir og áhyggjur lífsins, smáar sem

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.