Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1939, Qupperneq 17

Heimilisblaðið - 01.05.1939, Qupperneq 17
HEIMILISBLAÐIÐ 89 mínum á aðra braut en þá, sem þær höfóu dvalið á nú um stund. Þegar Emma. kom inn aftur, var hún al- veg forviða á því, að við skyldum sitja kyrrir á sama stað; og við flýttum okkur nú eins og' við gátum, að búa okkur. Prest- konan vildi ekki verða samferða; bað hún okkur að fara varlega og fara ekki út á ísinn á firðinum, og lofuðum við því öll m.jög hátíðlega. Hríðina hafði stytt upp fyrir tveimur klukkutímum; loftið var milt og hressandi. Við héldum fyrst upp eftir þorpinu. Gamli leiddi Emmu og ég gekk við hina hliðina á henni. Eg fór ósjálfrátt að bera þessa síð- degisferð saman við árdegisförina til Hró- arskeldu. Þá liöfðum við verið þrjú saman, en þá vorum við öll þögul, utan við okkur, og í slæmu skapi. Núna vorum við líka þrjú saman, en samræður okkar féllu óþvingað- ar og innilegar. Og eins og ég í Hróars- keldu hafði kennt Andreu Margréti um hið leiða samkomulag okkar á milli, eins gat ég ekki að því gert, að ég þakkaði Emmu það, að við vorum öll sátt og sammála. núna. Það var eins og friður og eindrægnisandi fylgdi. Emmu, hvar sem hún ýar, og þessi andi umkringdi allt og alla, sem voru í nánd við hana, Og jafnvel þótt samræð- urnar félli niður stund og stund, og við héldum leiðar okkar þegjandi, þá fannst mér þó eins og .hugsanir okkar mættust á miðri leið, svo sa.mræmið olvkar á milli fór aldrei út. um þúfur. Sál mín. fylltist friði og rósemi, og ,mér fa,n,nst, kyrrlát lífsgleði st-reyma um mig allan, og þegar mér varð litið yfir snævi þakin húsin og mjallklæddu hólana á bak við þau, og gráa himininn, sem hvelfdist yfir það allt, saman — þá fann ég til slíks friðar og slíks sam- ræmis hins ytra og hins innra, að ég hneigöi höfuð mitt, í auðmýkt. hjartans, og þakk- aði g'óðum Guði fyrir öll þau gæði, s,em ég hafði af honum þegið, á hinu hverfandi ári; en innilegast þakkaði ég honum þó fyrir það, að ég hafði fengið að kynnast Emmu. Allir, sem við mættum á göngu okkar um þorpið — karlar og konur, ungir og gamlir — allir þurftu að heilsa Emmu; og hún ávarpaði hvern og einn einasta nokkrum orðum. En það, sem undraði mig mest., var að það var engu, líkara, en að öllu þessu fólki þætti jafn vænt, um Emmu. Það heilsuðu allir Gamla og allir ávörpuðu hann líka. Margi.r spurðu, hvort, hann kæmi ekki bráðum til að messa fyrir þá. eins og hann, hefði lofað þeim. Og ég varð nauðug- ur viljugur að samsinna því, sem Emrna hafði staðhæft við mig, fyrir fáum dögum, að Gamli ætti víðar heima en í sínum eigin draumaheimi: hann hafði meira saman við veruleikann að sælda, en mér hafði áður tii hugar komið. Og mér var alveg óskiljanlegt, hvernig Ga.mli fór að muna, hvað allir smástrák- arnir hétu, sem mættu okkur; en þeir voru óteljandi, virtist mér. Þeir voru í stórhóp- um úti fyrir hverju húsi — og þeir komu stökkvandi til okkar, til þess að heilsa okk- ur með hanclabandi; sumir staðnæmdust skammt frá okkur, og toguðu í hárið á sér í kveðjuskyni, af því að engin var húfan til að taka ofan. »En síðan hvenær þekkir þú alla þessa krakka-anga, Kristófer?« spurði ég. »Em,ma kenndi mér nöfnin á þeim öllum saman, þegar ég var hérna, í sumar sem leið«. »Og hvernig farið þér að muna, hvað þau heita öll saman?« spurði ég Emmu. »Mér sýnist, þau öll vera eins: ljósgult hár og blá augu — blá augu og ljósgult hár; eirii munurinn, ,sem ég sé á þeim er sá, að sum eru ofurlítið óhreinni en sum«. »Menn þekkja, ætíð það, sem menn uiina og þykir vænt um«, syaraði Emma. »En allan þenna urmul«, sagði ég; — »nú, og það eru þá líka fleiri en tóm börn — þeir fullorðnu koma líka til greina. — Og svo eru líka nöfnin eins á þeim öllum! Ekkert- nema, Jón Pétursson og Pétur Jóms- son, Magnús Eiríksson og Eiríkur Magnús- son. Það er ómögulegt að fá botn eða er.da á slíku«.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.