Heimilisblaðið - 01.01.1949, Side 2
2
HEIMILISBLAÐIÐ
Útgef. og áhm.: ]ón Helgason.
Blaðið keniur út mánaðarlega,
um 280 blaðsíður á ári. Verð
árgangsins er kr. 15.00. f lausa-
sölu kostar hvert blað kr. 1.50.
— Gjalddagi er 14. apríl. —
Afgreiðslu annast Prentsiniðja
Jóns Helgasonar, Bergstaðastr.
27, sími 4200. Pósthólf 304.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
Gengið yfir landamæri
uppi í skýjunum
(Sjá forsíðumynd)
Pað voru fáir áhorfcndur — nœsl-
um því eingöngu blaðaljósmyndarar
er voru vitni að einhverjum þeiin
ævintýralegasta línugangi, er sögur
fara af. Siegwart Bach (19 ára) og
Gisela Lenort (18 áral létu strengja
160 inetra langa línu milli tveggja
linda á fjallinu Zugspitz í Olpunum,
en það er 3000 metra liátt. Annar
tindurinn er í Austurríki og hinn í
Þýzkalandi, og landamærin eru i
djúpri lægð á milli þeirra. Við rætur
fjallsins er Garmisch Partenkirchen.
Þau gengu sainan út á línuna. Þegar
þau voru hérumbil hálfnuð lagðist
unga stúlkan niður og lét félaga sinn
ganga vfir sig og liélt hann síðan
áfram ferðinni. Það hafði engum ör-
yggisútbúnaði verið komið fyrir. Þau
báru bæði jafnvægisstengur. Stöng
Bachs vó 33 kílógrömm. Þau voru
í ullarsokkum en skólaus. Það gef-
ur að skilja að áhorfendurnir fylgd-
ust með þessu hættuspili allan tím-
ann. Eii gangan gekk eins og í sögu.
Listahjúin gerðu þetta að sjálf-
sögðu ekki eingöngu sér til skemml-
uiiar. Þau cru bæði í hinu fræga
„Camilla-Mayer-show“, en nasistarnir
bönnuðu starfsemi þess félagsskapar.
Bonaventure des Periers
ÞEGAR JANIN KVÆNTIST
IANIN fannst vera kominn
" tími til aS kvænast. Og svo
baö liann 'sér konu. Sagt var,
að hún væri ekki við eina fjöl-
ina felld. Hún reyndi þó ekki
að draga dul á lesti sína, því
hún kærði sig ekkert um að
eyðileggja mannorð manns síns.
Dag nokkurn hitti nábúi Jan-
ins hann að máli og spurði liann
spjörunum úr um hjónabandið.
Samtal þeirra varð dálítið
spaugilegt.
— Jæja, Janin, svo að þú
ert kvæntur?
Og Janin svaraði:
— Víst er ég það.
— Það er ágætt, sagði hinn.
— Nei, það er ekki ágætt,
svaraði Janin.
— Hvers vegna ekki?
— Af því að liún gerir það
sem henni sýnist.
— Það er afleitt.
— Nei, það er ekki svo af-
leitt.
— Hvers vegna ekki?
— Hvers vegna? Af því að
hún er ein af fallegustu kon-
unurn í sveitinni.
Nú ætla þau að fara til Ameríku.
Við vonum að Ameríkumenn taki
vel á móti þeim. Þetta er að þeirra
skapi! Að ganga í gegnum loftið
frá einum skýkljúfinum til aiinars
er líkt og að drekka blávatn í sam-
anburði við hina lífshættulegu göngu
í Ölpunum!
-— Það er ágætt.
— Nei, það er ekki ágætt.
— Hvers vegna ekki?
— Það kemur iðulega til
hennar maður.
— Það er afleitt.
— Nei, það er ekki svo af-
leitt.
— Hvers vegna ekki?
— Af því að liann gefur mér
alltaf eitthvað.
— Það er ágætt.
— Nei, það er ekki ágætt.
— Hvers vegna ekki?
— Hann sendir mig alltaf í
burtu.
— Það er afleitt.
— Nei, það er ekki svo af-
leitt.
— Hvers vegna ekki?
— Af því að hann gefur mér
peninga, svo að ég get keypt
mér mat og drykk.
-— Það er ágætt.
— Nei, það er ekki ágætt.
—- Hvers vegna ekki?
—- Ég verð að vera úti í
regni og stormi.
— Það er afleitt.
— Nei, það er ekki svo af-
leitt.
-— Hvers vegna ekki?
— Ég er vanur því.
Nú getið þið sjálf lialdið
áfram. Þetta er ein af þeim
sögum, sem maður getur gert
langar eða stuttar eftir vild.
-------------------------------—■— ------------- '
Dráttur sá, er or&ifí hefur á útkomu bla&sins, stafar
af því á& pappír vantaSi.