Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 38

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 38
7 36 HEIMILISBLAÐIÐ giftir konu þeirri, sem með þeim væri. En nú höfðum við hvorki far- angur né hjónavígsluvottorð, svo að öll sund voru okkur lokuð. „Skipan- ir eru skipanir", sagði þjónninn, og lét sig livergi. Þá sneri kona mín reiði sinni að mér. Hún benti á, hversu mikill asni og forsjárleysingi ég væri, og þegar heríni fór að hitna í hamsi, fór ég að fara hjá mér. Éjj.1 leit til þjónsins, til að sjá, hvort nann væri að hlusta á okkur. Hann reyndi ekki að draga dul á, að svo væri, en nú rétti hann mér lykil. — Herbergi númer 804, sagði hann. Svona tala ekki aðrar konur en þær sem giftar eru! FerðamaSurinn: Geturðu sagt mér, Pétur, hvar pósthúsið er? Pétur: Hvernig veiztu, að ég heiti Pétur? FerðamaSurinn: Ég gizkaði á það. Pétur: Nú, þá geturðu líka gizkað á hvar pósthúsið er. A heimili einu varð fólkinu tíðrætt um ættarnöfn, sem enduðu á „an“ og „on“. Þriggja ára drengur hlustaði á samtalið, unz hann sagði: — Ég veit hvaða nafn ég vil taka. — Hvað er það, vinur minn? spurði móðir hans. — Ég ætla að kenna mig við þig og kalla mig Mamnion. Pétur litli var mjög kvefaður og saug upp í nefið í sífellu. Hefðarkona ein við hlið hans ávarpaði liann loks á þessa leið: •— Hefur þú engan vasaklút, drengur minn ? — Jú, sagði Pétur, en maminn hefur bannað mér að lána hann. Það kom fyrir í veizlu, að kona nokkur kallaði til annarrar yfir þvera stofuna: — Ég hef verið að hugsa um það, væna mín, hvernig geti stað- ið á því, að þér skyldi ekki hafa verið boðið í veizluna til frú Jónsson um daginn. Iiin konan brosti. — Er það ekki merkilegt, að vjð skyldum báðar vera að hugsa um þessa sömu veizlu, sagði hún. Ég var einmitt að hugsa um, hvernig gæti staðið á því, að þér skyldi hafa verið boðið. „Gamalla blóma angan“ ILMVÖTN HÁRVÖTN Vinsœlar og hentugar gjafir. VerS viS flestra hœfi. Fást í smásölu í fjölmörgum verzlunum. Einkasala til verzlana og rakara hjái ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.