Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 27

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 27
H EIMILI S B L A Ð IÐ 25 aður og illa til reika, a3 ég 'lmé niður og Jnirfti ekki lengur aS gera mér upp eymdina. Góff stund leið, áður en nokkur svaraði. Það varð livergi vart við lífsmark í Jjessu skuggalega liúsi. Ég lieyrði froskana kvakka í polli, sem var rétt lijá liesthúsinu, og liávaðinn í þeim hland- aðist lijaírtslætti mínum. Annað hljóð heyrðist ekki. Ég reis upp aftur, örvita af skelfingu og óþolinmæði, barði og spark- aði með skóhælum mínum í naglrekna Jiurðina og hrópaði í örvæntingu minni: — A moi! A moi! Þá, eða augnabliki síðar, heyrði ég hurð opnaða í fjarska; síðan heyrði ég fótatak nokkurra manna færast nær. Ég hróp- aði aftur: — A moi! Hver er þar? vár spurt. — Maður, í vandræðum staddur, svaraði ég aumkunarlega. I Guðs hænum, opnið og lilevpið mér inn. Ég er meiddur og er að devja úr kulda. Hvers vegna komið Jiér liingað? spurði röddin hvasslega. Ég þóttist lieyra, að J)að væri kvenrödd, þótt hún væri liörku- leg. Það má liamingjan vita, svaraði ég í örvæntingu. Ég get ekki útskýrt það. Mér var misþyrmt í gistihúsinu og fleygt út á götu. Ég skreiddist í burtu og hef ráfað úm í skóginum klukku- stundum saman. Svo sá ég ljós hérna. Nú hófst hljóðskraf hinum megin við hurðina — og ég lagði eyrað upp að henni. Því lauk á þann liátt, að slagbrandarnir voru dregnir frá. Dyrnar voru opnaðar í hálfa gátt, og jjað lá við, að birtan að innan hlindaði mig. Ég skyggði fvrir augun með hendinni, og um leið og ég gerði Joað, Jjóltist ég lieyra meðaumkunarorð. En þegar ég tók höndina frá augunum, sá ég aðeins einn mann — manninn, sem hélt á ljósinu, og svipur hans var svo einkennilegur, svo hryllilegur, að ég hörfaði aftur á hak, J)ótt ég væri yfirkominn af þreytu. Hann var liár vexti og mjög grannur, klæddur of litlum jakka og stöguðum sokkurn. Af einhverri ástæðu gat hann ekki beygt hálsinn, svo að höfuðburðurinn var mjög einkennilegur. Og höfuðið — aldrei hefur jafnlíkt höfuð dauðanum setið á nokkrum búk. Fremri hluti þess var sköllóttur og gulleitur, kinnbeinin voru útstæð undir þaninni húðinni, neðra andlitið og kjálkarnir drógst að sér og var einkennilega niðurmjótt, hann var kinnfiskasoginn, með þunnar og holdlitlar varir og höku. Svipur lians virtist óumbreytanlegur — það var eins og stirðnað glott á andlitinu. Ég stóð kyrr, og virti þessa liræðilegu mannsmynd fyrir mér, en liann hrá við skjótt og ætlaði að skella á mig lnirðinni, og brosið breikkaði. Ég liafði hugsun á að setja fótinn í tíma milli hurðar og stafs, og áður en honum gæfist tóm til að setja sig — Þetta liefur verið dásain- legur dagur, tautaði Rupert. Eyja þessi er sjálft ævintýra- landið! Er Jnið nokkuð undar- legt, Jiótt við eyjarskeggjar varðveitum barnseðlið? Jóhannes Kepler (1571—1630) JJANN var einn af liinum frægu frumkvöðlum stjörnu- vísinda síð'ari alda. Það varð hlutverk lians að sýna, hvar fyrirrennurum lians liefði skjátlazt, með Jiví að gera nýjar og nákvæmari athuganir og gera svo tilgátur þeirra að vísinda- legum sannindum. Kepler var fæddur í borginni Weil. Faðir hans var borgar- stjóri og var við góð efni. En móðir lians var ómenntuð kona og vanstillt mjög í skapi. — KepJer var guðrækinn mað- ur. Þegar hann var búinn að ljúka höfuðriti sínu: „Sam- hljóðun heimsins“, J)á ritaði liann eftirfarandi bæn: Áður en ég geng frá })essu horði, sem ég hef setið við og gert allar mínar rannsóknir, j)á er aðeins eitt eftir, og það er að hefja augu mín og hendur til himins og snúa mér í auð- mjúkri og guðrækilegri bæn til föður ljósanna. Ó, Guð, þú, sem liefur beint J)rá vorri upp á við til liins guð- dómlega Ijóss náðar þinnar, svo að vér getum síðan flutzt inn í hið eilífa Ijós dýrðar þinnar nieð Jieim dýrðlegu ljósum, sem þú hefur kveikt hvarvetna í ríki náttúrunnar. Ég þakka J)ér, Drottinn vor og skapari, fyrir

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.