Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 15
HEIMILISBLAÐIÐ 13 Seán Galway ALEXANDER MIKLI JTANN liét Alexander, sonur Ochieng; það sagð'i hann að minnsta kosti, og hann var þjónn minn. Það upplýstist síðar, að nafn hans, nafnskír- teini og föt höfðu áður talizt eigur einhverra annarra. Hann var um það bil sex fet á hæð og mjög ljótur. Andlit lians var alþakið örum, bæði eftir hörundsflúr ættflokks lians og svo önnur sár, sem að- eins gátu átt rót sína að rekja til bitlausra eggjárna eða flöskubrota. Ur vinstra eyra hans liafði verið numinn bog- myndaður flipi, eins og þétt- ar og hvassar tennur hefð'u bit- ið hann úr. Hann liafði líka verið bitinn úr í giftingarveizlu eins af frændum hans; brúð- guminn er væntanlegur úr tugt- húsinu eftir svo sem hálft ár. Hann barst mikið á í klæða- burði. Hversdagsklæðnaður hans var sérstakur í sinni röð. Hann var í peysu af trúðleik- ara og útprjónuðu vesti þar utan yfir, gulum stuttbuxum og támjóum og löngum skóm. Annar sokkurinn var græn- og bláröndóttur, en hinn fjólublá- og gulröndóttur. Yfir þessum skrúða gnæfði eldgömúl skóla- húfa með skúf, sem þó var auð- séð, að hafði fyrri verið höfuð- prýði einhvers nemanda í al- kunnum menntaskóla. 1 lier- deildinni var fyrrverandi nem- andi úr þessum skóla, og hann rauk alltaf upp ef hann var spúrður, hvort þeir Alexander væru af sama heimilinu. En sennilega hefur liann aldrei verið eins fínn og þeg- ar hann „fann“ heilan viðhafn- areinkennisbúning af ítölskum höfuðsmanni. Hann náðist þar sem hann var kominn niður í bæinn í öllu skartinu, með axlaskúfa, heiðursmerki og leðurstígvél. Alexander var sex fet á hæð, en höfuðsmaðurinn gat ekki hafa verið öllu meira en fimm fet og sex þumlungar, svo ekki var hægt að segja, að fötin væru eins og sniðin á liann. Alexander hafði líka óbrigð- ult verzlunarvit. Einu sinni tók liann ótrúlegu ástfóstri við ketti. Það var varla hægt að stíga niður fæti í bragganum mínum fyrir þeim, og þeir voru allavega litir — svartir, hvítir, brúnir og jafnvel köfl- óttir. Það voru kettir í rúminu, kettir undir rúminu, kettir í baðklefanum, og kettir á kamr- inum. Orsökin til þessa var sú, að rétt hjá okkur var stödd hersveit frá Nigeríu. Upp- áhaldsréttur þessara hermanna var kattaket, hvort heldur það var soðið eða steikt, og Alexander hafði sölsað undir sig markaðinn. Hann var ágætur þjónn. Ég var ekki kröfuharður, og það fór ágætlega á með okkur að öðru leyti en því, að honum hætti við að líta á mínar eigur sem sínar. Hann var alltaf heiðárlegur, þegar ég átti í hlut. Samt fannst honum það hrein- asti sérgæðingsskapur af mér, að vilja ekki gefa honum hlut- deild í birgðum mínuni af síg- arettum og viskí, svo að hann afgreiddi sig sjálfur án minnsta samvizkubits. Skilnað okkar har að með liryggilegum liætti. Alexander „tók til láns“ viskíflösku og gin- flösku af birgðunum. Að því loknu liélt hann lit í skóg til að skemmta sér. Ef hann liefði verið kyrr í skóginum, hefði allt farið vel, en til allrar óliam- ingju afréð hann að vekja þorpsbúa af svefni. Hann var mjög ræfilslegur, þegar hann kom lieim daginn eftir, og augnaráð lians var kvíðandi. Um það bil klukku- stundu síðar kom þorpslög- reglan með allstóran lióp af vitnum, sem voru óðamála og bar hvert einasta þeirra greini- leg verksummerki eftir fjörleg- ar liandatiltektir Alexanders. Alexander var dæmdur til sex mánaða þrælkunarvinnu. Ég er reiðubúinn til að taka ofan fyrir hverjum þeim, sem getur fengið Alexander til að þræla. STÖKUR Lundin hlœr og léttist önn, lindir tœrar hjala, roöa slœr á fjallafönn, fífill grœr á bala. Geislar falla um grund og mó gulli fjalliS skreyta. Arnar kalla: út aS sjó! USa af stalli þeyta. NorSIingur.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.