Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 11

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 11
HEIMILISBLAÐIÐ 9 V i v a Liitken BIÐIN — Ég lield að við séum á leið að rífast . . . — Þú vilt ekki skilja mig! Það var gremjuhreimur í rödd- inni, og svipurinn á andliti unga mannsins var afundinn. — Ó, Hans! sagði Lísa og lagði höndina blíðlega á harnl- legg hans. Horfðu í kringum ])ig! Við getum ekki verið þekkt fyrir að rífast í svona fögru umhverfi. — En þú vilt ekki lofa mér að njóta þess! hrevtti hánn út úr sér og sneri sér frá henni. Lísa andvarpaði. Hann var eigingjarn og brekóttur eins og krakki. Nú liafði liann fengið ])á flugu í liöfuðið að ganga á jökul, þótt liann liefði aldrei fyrr gengið á fjöll og vissi því ekki, hversu hættulegar sh'kar ferðir voru. Tröllaukinn fjallaliringur var umhverfis þau. Kofinn, sem þau höfðu dvalið í í nokkra daga, var á afskekktri liæðar- brún. A aðra hönd tindraði skriðjökullinn í sólinni, með hvíta snjóhettu, er gnæfði við djúpbláan sumarhiinin. Snjó- breiður, er í gær mvnduðu háa skafla, bráðnuðu smátt og smátt í liitanum, meðan síðustu ský- Imoðrarnir læddust niður í dalinn. Það hafði rignt dögum sam- an í dalnum, en hér uppi í hæð- unum var dásamleg Iivít fegurð. Hans hafði dauðleiðzt á fjallahótelinu, og loksins hafði Lísa samþykkt að þau færu upp í fjöllin, og þau iðruðust þess ekki. Þokan þynntist eftir því sem hærra dró, og fegurð Alp- anna opinberaðist þeim. En svo fékk Hans hugmyndina um jökulgönguna. Og ekki mátti híða að framkvæma hana, fylgdarmaðurinn var strax ráð- inn. — Þú ættir að híða í nokkra daga ennþá, mælti Lísa, unz meira liefur þiðnað af nýja snjónum. Það er allt annað en auðvelt að vaða í hnédjúpri fönn, ég þekki það af eigin raun! — Hver segir, að það sé auð- velt? Skilurðu ekki að hættan hýr vfir ótrúlegu aðdráttarafli, að maður þráir að ryðja örð- ugleikunum lir vegi og sýna mátt sinn. Það verður dásam- legt að standa á efstu jökul- gnípunni! Mún brosti. Hún hafði talað við leiðsögumanninn. Hann hafði sagt að ferðalagið yrði erfitt, en algerlega liættulaust, ef ungi maðurinn gæfist ekki upp á miðri leið. En Hans vant- aði einmitt þrautseigjuna. Hvers vegna fann liún undar- legan l)evg fara um sig? — Hverju mundirðu svara, ef ég hæði þig að fara ekki mín vegna? — Þú hefur lofað að verða lífsförunautur minn. Ætlarðu að leggja stein í götu mína? För þessi verður mér mjög mik- ils virði. Ég fékk hugmynd að nýrri bók, þegar ég leit fjöllin í fyrsta sinn, en ég verð að lifa atburði bókarinnar, þar sem þeir eiga að gerast. — Hvers vegna má ég þá ekki koma með? Þetta er þó brúð- kaupsför okkar! — A þá ástin að verða lilekk- ur um fót mér? hrópaði hann reiður. — Hans! .. . liún lagði hönd- ina óttaslegin á varir hans, segðu ekki meira. Ég var heimsk. Auðvitað ferðu einn, fyrst þú þráir það svo mjög. Ég skildi ekki strax afstöðu þína. — Lísa! mælti hann og kyssti hana glaður á svip. Þú mátt aldrei svíkja mig. Ég átti að vita, að þú skilur óskir mínar. Jafnvel ])ótt ég fljúgi burt frá þér, get ég verið þess fullviss, að þú bíður mín ávallt. Komi ég einliverntíma með særða vængi, átt þú lækna mig. Þess vegna verður ])ú eftir í fyrra- málið. Þú situr hér og horfir á mig í sjónaukanum klífa upp á tindinn. Ég veit, að þú bíður mín! Lísa hrosti og mælti angur- værri röddu: — Ég — ég mun ávallt bíða þín, vinur minn! /^LITRANDl sólskin yfir mjallhvítum snjó mætti augum Lísu, þegar hún litað- ist um fyrir utan kofann dag- inn eftir. Gestgjafinn hafði sýnt þá greiðasemi að stilla fvrir hana sjónaukann, og löngu áður en von var á þeim upp á tindinn,

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.