Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 4
Matthías kveður yndislega um jólin, • er hann átti sem barn. — Jónas kveður um „heimska menn“, sem „stela“ Guði úr hjörtum mannanna. En þessari starfsemi er allt- af haldið áfram, að ,,stela“ hinni sönnu og varanlegu jóla- gleði úr hjörtum manna. Og á meðan vér erum ungir og óþroskaðir, er oss mest hætta búin í þessu efni.'— Vér heyr- um daglega í kringum oss raddir, sem segja: Jesús var aðeins góður maður; hann var sonur Jósefs og Maríu. Hann gerði aldrei nein kraftaverk og leið dauðann fyrir gott mál- efni, eins og svo margir aðrir hafa gert. — Og þetta segja ekki einungis þeir, sem kallaðir eru trúlausir, heldur einnig stundum þeir, sem eiga að standa á verði fyrir Krists mál- efni. Og það er það sorglega. Og er þá furða, þótt hinir ungu villist? Því vissulega villast þeir menn í trúarefnum, sem véfengja jólaboðskapinn og draga þar með úr dýrðarblæn- um, sem hvílir yfir þessum blessaða boðskap í Lúkasar- guðspjalli: „Og í þeirri byggð voru fjár- hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og eng- ill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði í kring- um þá og urðu þeir mjög hræddir. Og engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðn- um, því að yður er í dag frels- ari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. Og haf- ið það til marks, að þér mun- uð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu“. Ög í somu svipan var þar með englinum f jöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: „Dýrð sé Guði í upp- hæðum og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hef- ur velþóknun á“. Allt líf Jesú var staðfesting á þessum boðskap og vitnis- burður hans um sjálfan sig í fyllsta samræmi við hann. Óg það, sem frásögur guðspjall- anna segja oss um Jesú, líf hans, dauða og upprisu, er bet- ur sögulega sannað en nokkur annar viðburður sögunnar. Það orð, sem guðspjöllin geyma, hefur alltaf verið lif- andi orð. Postularnir, sem sjálfir voru vottar að upprisu Jesú og himnaför, létu flestir lífið fyrir þann boðskap. Læri- sveinar þeirra létu lífið fyrir sama boðskapinn. Ofsóknirnar voru óslítandi gegn hinum kristnu fyrstu aldirnar, svo að hvað sem allri sagnaritun hefði liðið, þá skrifuðu píslarvott- arnir fagnaðarboðskapinn um hinn krossfesta og upprisna frelsara með blóði sínu í hjörtu eftirlifandi trúbræðra sinna. En nú vill svo tú, að sagna- ritarar þeirra tíma staðfesta frásögur guðspjallanna — já, einnig heiðnir sagnaritarar. Jesús gaf lærisveinum sín- um það fyrirheit, áður en hann fór til himna, að hann mundi verða með þeim allt til verald- arinnar enda. En í þessu fyr- irheiti lá auðvitað fyrst og fremst það, að hann mundi á öllum öldum varðveita hinn sáluhjálplega fagnaðarboð- skap. Og hann var áður bú- inn að segja lærisveinum sín- um það, að sér væri gefið allt vald á himni og jörðu. öll „kritik“ á frásögum Nýja- testamentisins fellur því mátt- vana niður, þegar hún mætir þeim, sem trúa hinni postul- legu trúarjátningu. 0, hve það væri raunalegt, ef sú þjóð, sem Drottinn gaf Passíusálmana og Vídalín á dimmum þrengingar- og rauna- tímum — ef hún kastaði frá sér því blessaða hjálpræði, sem þar er svo yndislega sungið um. Guð varðveiti þjóð vora frá þeirri ógæfu og gefi oss öllum gleðileg jól í Jesú Kristi Drottni vorum. ÞÓRARINN KRISTJÁNSSON Hljómskálagarðurinn í júní 1954 Hér andar golan glatt á vangann þinn; GiS þér fœri heitan geislann sinn. Bjarkir dafna blí'Su sumars vifi, blunda svanahjón viS andakliS. Tjörnin glitrar, grund er blómum skreytt. GuS er nœr, sem lífifi hefur veitt. [184] HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.