Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 5

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 5
MICHAEL GARETH LLEWELYN Lofsöngur jólanna 'AVÍÐ MOSTYN sneri sér við í átt- ina þangað sem hljóðið kom og hlustaði. — F an, tryggi fjárhundurinn hans, sperrti eyrun. Hann hafði leg- ið í skjóli við limgirðinguna, en reis á fætur og gekk til Davíðs, um leið og hann leit spyrjandi á hann. Þá heyrðist það aftur — lágt jarm, sem ekki var um að villast. Það var kind, sem þjáð- ist, einhvers staðar ekki langt frá. - Strax . . .? hugsaði Davíð Mostyn. Já, það var sannarlega nokk- uð snemmt, ef ærnar voru farnar að bera núna, á sjálfu aðfangadagskvöldi jóla. Davíð hafði ekki átt von á því, og hann rak upp lágt undrunar- óp. Hvað átti hann að gera? Að klukkustund liðinni átti hann að vera staddur í litlu dalskirkjunni og stjórna kirkjukórnum. Þrátt fyrir æsku hans hafði presturinn falið honum að stjórna söngn- um á sunnudögum og eins þeg- ar lofsöngvarnir hljómuðu á stórhátíðum, páskum og jól- um. Gamli pósturinn, Watcyn, varð mjög móðgaður, þegar hann fékk ekki stöðuna. Og hann endurtók hvað eftir ann- að við félaga sína, þegar þeir sátu við öldrykkju í Prins Llewelyn, að hann hefði þó í yfir tuttugu ár verið bezti ten- órsöngvari kórsins. I kvöld, á aðfangadagskvöld jóla, átti Davíð Mostyn í fyrsta skipti að stjórna kórnum. Presturinn hafði sagt, að þetta væri prófraun Davíðs. Gamli hringjarinn hafði far- ið upp í kirkjuturninn fyrir hálftíma til þess að hringja inn jólin. Systurnar sex með silfurtungurnar, eins og klukk- urnar voru kallaðar, sendu jólaboðskap sinn út yfir dal- inn, sem var umgirtur dimm- um fjöllum Wales. Klukkna- hljómurinn hækkaði og lækk- aði, og bergmálið barst marg- falt frá fjallahlíðunum. Hér uppi var kveðja klukkn- anna eins og fjarlægur ómur, en niðri í dalnum var hljóm- urinn voldugur. Davíð Mostyn brosti, þegar hann hugsaði til Kristófers, litla drengsins síns, sem var nýlega fæddur og var sjálfsagt sofandi í vöggu sinni, og Bronwens. Klukkna- hljómurinn mundi ekki vekja Kristófer. Hann hafði svo iðulega sofið öruggum svefni í örmum móður sinnar á með- an hún tók þátt í æfingum kórsins. Hún hafði ruggað þeim litla vært á meðan hún söng með hinu fólkinu og klukkurnar í kirkjutuminum tóku lágt undir. Nei, klukkna- hljómurinn mundi ekki vekja Kristófer í útskornu eikar- vöggunni, þar sem hún stóð í króknum hjá ofninum í Pant- Yr-Eos. Davíð Mostyn andvarpaði lágt, þegar honum varð hugs- að til nýja lofsöngsins, sem kórinn hafði æft. Það var nauðsynlegt, að hann næði til kirkjunnar, áður en guðsþjón- ustan byrjaði, því að án hans gæti kórinn ekki sungið lof- sönginn. Nóturnar höfðu bor- izt svo seint, að tíminn hafði verið tæpur til æfinga. En það var líka meðhjálparanum að kenna. Hann hafði afhent nót- urnar of seint, en eins og venjulega frestaði hann öllu til síðustu stundar. Það var ekki að undra, þótt hann væri kall- aður Dai Rees — morgun- dagur. Fan stóð við hné Davíðs og heimilisblaðið [185]

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.