Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 7

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 7
kórsins. Hann vissi þó, að kirkjan var lengst niðri í dal, og þó var söngurinn svo nærri honum, rétt eins og þegar móð- ir syngur við barnið sitt. Davíð var önnum kafinn við að sinna fénu, og ef til vill var það þess vegna, sem hann gaf sér ekki tíma til þess að undr- ast yfir þessum fyrirburði, sem honum virtist svo eðlilegur. Söngurinn hljómaði stöðugt — fyrir pfan hann — umhverf- is hann: Því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er hinn smurði Drottinn í borg Daviðs. Fjárhirðirinn reis upp frá jötunni, þar sem hann hafði kropið og hjálpað dauðvona ánni til að fæða. Hann gekk í áttina til dalsins. Kirkjan var uppljómuð og lýsti honum. Vaxkertin í gömlu ljósakrón- unni blöktu vinalega á móti honum, kölluðu á hann, þar sem hann gekk með lambið á handleggnum og Fan á hæl- unum niður götuslóðann að hvítkalkaða bóndabænum — heimili hans, sem hann nefndi Pant-Yr-Eos — Næturgala- hreiðrið. Eftir því sem hann kom lengra niður í dalinn varð I kirkjuhljómlistin greinilegri — falleg og táknræn hljómlist og söngur — dásamlegur lofsöng- ur, er stormurinn hafði borið til hans á vængjum sínum. Davíð Mostyn horfði á dökk skýin. Fyrstu snjóflyksurnar voru að byrja að falla til jarðar. Dásamleg nótt, hugsaði hann, öðruvísi og þó ef til vill lík þeirri nótt, þegar fjárhirð- arnir höfðu heyrt englana syngja: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð . . A jóladagsmorguninn var snjórinn eins og hvítt, þykkt flos yfir dalnum og fjöllunum. Watcyn póstur kom með jóla- bréfin til Pant-Yr-Eos. - Söngurinn við guðsþjón- ustuna í gær var ágætur, Da- víð, sagði hann. Þú hefur æft kórinn vel . . . Þetta voru mikil lofsyrði frá gömlum keppinaut. - Ég heyrði það, sagði Da- víð Mostyn, sem gaf móður- lausa lambinu að sjúga úr pela- glasi. Ég var einmitt á leið að leggja af stað til kirkjunnar, þegar ein ærin veiktist og bar þessu lambi. Watcyn gamli strauk með grófri hönd sinni mjúka ull lambsins. - Það, sem þér gerið einum af mínum minnstu bræðrum, það hafið þér og mér gert, tautaði hann hátíðlega. Þannig mælti hinn mikli hirðir. Davíð rétti úr sér. - Þökk fyrir, Watcyn, sagði hann, þessum orðum skal ég aldrei gleyma. Svo brosti hann. Það lítur út fyrir, sagði hann, að kirkjukórinn geti sungið án stjórnanda . . .! Watcyn lagði hönd sína þétt á axlir Davíðs. - Kórinn hafði stjórnanda, sagði hann. - Hafði hann það? tautaði Davíð spyrjandi rómi. Watcyn kinkaði vingjarn- lega kolli, um leið og hann gekk leiðar sinnar, en Davíð sneri aftur inn til sín, þar sem Bronwen, konan hans, brosti glaðlega við honum. Að utan bárust hljómar jólaklukkn- anna. - Barn er oss fætt, sagði Bronwen lágt. Maður og kona leiddust að vöggunni og horfðu á barnið, sem svaf vært. - Já, við höfum líka eignazt barn, svaraði hann og þrýsti innilega hönd konu sinnar. heimilisblaðið [187]

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.