Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 9
Albert Schtveitzer vinnur á sjúkrahúsi sínu, þótt hann sé orðinn áttrceSur ai5 aldri. Hann stjórnar sjáljur byggingu hins nýja bœjar fyrir holdsveih fólk, sem hann reisir fyrir NobelsverSlaunaféS. Hann vill, aS allir, sem geta, vinni í þakklœtisskyni fyrir hjúkrun og lyf. Hann fylgist meS svertingjunum og vinnur oft meS þeim. holdsveikt fólk, þó ekki mjög margt, því að ekki var hægt að veita því algjöra lækningu. En stuttu eftir síðustu styrjöld fannst í Ameríku lyf, er gat stöðvað útbreiðslu veikinnar, og undir vissum skilyrðum læknað hana, svo að holds- veikissýkillinn hvarf úr blóð- inu og um smithættu var ekki lengur að ræða. Áður en þetta lyf kom á markaðinn hafði það verið siður frumbyggjanna í þorpum frumskóganna að reka hina holdsveiku burtu, strax og einkenni sjúkdómsins komu í ljós. Hinir sjúku voru reknir inn í skóginn, og þar létust þeir eftir stuttan tíma, eða þeim var hrint út á fljótið á fleka, og þar drukknuðu þeir, en þannig var einnig farið með geðveikissjúklinga. Það var hvergi hægt að einangra þetta fólk, sem gat ekki tekið þátt í almennu lífi þorpsbúa. Þar þekktist engin hjúkrun eða ymönnun. Vinsamlegt fólkí Ameríkusá um, að hið nýja lyf væri senttil sjúkrahúss Alberts Schweitz- ers, og það leið ekki á löngu, unz sú frétt barst út á meðal svertingjanna, að hinn mikli læknir gæti líka læknað þá holdsveiku. Sjúkt fólk kom úr öllum áttum, og það var engin leið að hýsa það allt í sjúkrahúsinu, og með aðstoð læknisins reisti fólkið sér bambuskofa. En bambuskofar eru ekki varanlegar byggingar. Þeir standa sjaldan lengur en þrjú ár. Grunnur þeirra skekkist af regni, og dag nokkurn geisar þrumuveður og bambuskof- arnir falla til jarðar, eins og laufblöð. Holdsveikissjúkling- ar verða að minnsta kosti að dvelja á sjúkrahúsi 5—6 ár, stundum miklu lengur. Lækn- irinn tók þá ákvörðun að byggja traustan bæ handa holdsveikissjúklingum sínum, sem þyldi regn og þrumuveð- ur. Allir hinir hrörlegu bamb- uskofar áttu að hverfa smátt og smátt og víkja fyrir hinum stóru húsum læknisins, en grunnur þeirra skyldi vera úr steinsteypu og þakið lagt báru- járni. Það var í janúar 1953, sem Albert Schweitzer hóf framkvæmdir að hinum nýja holdsveikrabæ. Hann var sjálf- ur byggingameistari og stjórn- aði verkinu, og hann var sann- færður um, að honum tækist að afla nægilegs fjár til verks- ins. Svo kom tilkynning um, að friðarverðlaunum Nobels fyrir árið 1952 hefði verið út- hlutað honum. Þá kom fyrir alvöru skriður á framkvæmd- irnar. Nú þurfti Schweitzer ekki að biðja vini víðs vegar um heim um hjálp. Þannig vildi það til, að peningum Nob- els er varið til þess að byggja hús fyrir svarta holdsveikis- sjúklinga i frumskógum Mið- Afríku. Um þessar mundir eru tvö- hundruð og þrjátíu holdsveik- issjúklingar í frumskóga- sjúkrahúsinu, en þegar nýja þorpið rís af grunni, rúmar það þrjúhundruð. Forsíðumy ndin: Bátalægið við Ægisgarð. Skarðs- heiðin og Esjan í baksýn. Myndina tók Pétur Thomsen af vatnslita- mynd eftir Guðmund Þorsteinsson málara. heimilisblaðið [189]

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.