Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 15

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 15
maður, með alla sína hörku, varð eitthvað meyrgeðja. Hann var sífellt að ræskja sig, eins og eitthvað sæti í kverkum hans. Ég sá ekki betur en hon- um hrykkju tár af hvarmi, eða var það kannske missýning? Hann flýtti sér að taka upp baukinn, stakk stút hans í nas- ir sér, hallaði höfðinu aftur á milli þreklegra herðanna og saug hryssingslega að sér, eins og hann vildi bægja allri við- kvæmni á braut. Þegar hann var búinn að fylla á sér gran- irnar, varð hann sjálfum sér líkur, brúnaþungur og hörku- legur. Ég gaf honum nánar gæt- ur. Andlitið er veðrað og stór- skorið, augun grá og harðleg undir íhvolfum augnabogum. Hendurnar, sem kreista borð- brúnina, eru stórar og hramms- legar, sprungnar neglur, tjara í hverri greip. Nei, þessi kaldranalegi sjó- maður er enginn dýrlingur í orðsins fyllstu merkingu — og þó. Við, sem lútum stjórn hans, berum til hans ótakmarkað trúnaðartraust, sem nálgast allt að því dýrkun. Ég sé, að hann hefur tekið eftir glápi mínu, því hann ygglir sig og rymur. En það er tákn þess, að ekki er allt eins og hann vill. - Á hvað ertu að góna, dengsi minn? spyr hann hörku- lega. Hefurðu aldrei séð mig fyrr? Ég verð sneyptur, roðna eins og skóladrengur, sem fengið hefur áminningu en spyr samt, áberandi skjálfraddaður: - Þetta er víst ekki fyrsta jólanóttin þín hér á Halanum? - Nei, og ekki sú síðasta, sagði hann. Röddin minnti á urr. - Hvað heldurðu, að þær séu orðnar margar? spyr ég. - Ég hef ekki haldið því til haga. Jólanætur eru ekkert frábrugðnar öðrum nóttum fyrir okkur, sem sjóinn stunda, nema þá, að við fáum skárra snarl hjá kokknum, en þar með er draumurinn búinn. Meira var ekki hægt að tosa upp úr honum. Hann klemmdi saman varirnar, eins og hann væri ákveðinn í að opna þær aldrei aftur. Ungur maður, Leifur, að nafni, hallaði sér yfir borðið til mín og spurði: - Ert þú ekki draumspakur? Ég heyrði það strax á mæli hans, að hann var af öðru sauðahúsi en við hinir. Rödd hans var mjúk og viðfelldin, málið fágað. Svipur hans var barnslega viðkvæmur, hörku- laus og sléttur. Hann hafði verið í skóla, en orðið að hætta sökum fjárskorts. Þetta var fyrsta veiðiförin hans og sú síðasta, ef vel gengi. Hann ætl- aði að verða prestur og átti tvö ár eftir að settu marki. - Hvað dreymdi þig? spurði ég. Láttu mig heyra. - Mig dreymdi, að ég væri dauður, sagði hann með upp- gerðarbros á vör. Það tók mig sjór og skolaði mér fyrir borð. - Það er fyrir langlífi, lagsi, sagði ég. Þú lifir okkur alla. - Mig hefur aldrei dreymt svona fyrr. Þetta var allt eitt- hvað svo veruleikakennt, sjór- inn, sem hreif mig út fyrir, barátta mín við að sökkva ekki, hróp ykkar og hringsól skipsins. Ég reyndi að vekja at- hygli ykkar á neyð minni með því að rétta upp hendurnar, en þið sáuð mig ekki. Svo sökk ég. Þegar ég vaknaði, sótti að mér uggur. Það væri svo sem ekkert undarlegt, þótt ég álp- aðist út fyrir, annar eins erki- klaufi og stirðbusi og ég er. Ég sá, að Tómas gamli glotti. Hann glotti alltaf, ef einhver lét bilbug á sér finna. Sjóhræddur, hefur hann sennilega hugsað. Stuttu síðar söng og hrikti í öllu. Dallurinn lagðist á hliðina, og sjórinn flæddi inn til okkar. Það varð uppi fótur og fit, árekstrar, bölv og ragn. Menn- irnir skoluðust fram og aftur og gripu í hvað sem hönd á festi, sér til halds. Svo fjaraði út, og dallurinn rétti sig. Stýrimaðurinn birtist í dyr- unum, holdvotur og ófrýnileg- ur. - Fari það allt i hvítgló- andi! öskraði hann, er hann sá, hvernig umhorfs var í salnum. Af hverju lokið þið ekki hurð- unum? Allir á dekk! Uti á þilfarinu mætti okkur kuldaleg aðkoma. Bylurinn var engu vægari en áður, og rokið svo afskaplegt, að ekki heyrð- ist mannsins mál. Brimhljóðið settist að í hlustunum, drunga- legt og dimmt, eins og lík- hringing. - Slá úr blökk! öskraði stýri- maðurinn. Skipun hans var samstundis hlýtt. Dallurinn hliðflatti fyrir sjó og stormi, og allt var á svarta kafi. Allir voru á sínum stað. Ég var við afturgálgann. Leifur stóð hjá mér. Hann átti að aðstoða mig, þegar hlerinn kæmi. heimilisblaðið [195]

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.